Marokkómaðurinn Nabil El Zhar hefur vakið nokkra athygli á þessari leiktíð fyrir að koma sterkur til leiks sem varamaður. Hann lagði til dæmis upp mark fyrir Albert Riera gegn Wigan um helgina eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Rafael Benítez hefur álit á stráknum.
"Fólk veit kannski ekki mikið um hann því hann hefur verið í varaliðinu. Hann er góður leikmaður sem er fljótur, snjall með boltann og býr yfir góðum leikskilningi. Það segir sína sögu að hann er í landsliði Marokkó. Hann getur átt eftir að reynast okkur vel en hann þarf meiri reynslu. Hann er samt leikmaður sem getur breytt gangi leikja. Hann æfir með aðalliðinu og við eigum eftir að sjá hvað úr honum verður. En hver veit hvað verður ef hann heldur áfram að standa sig vel."
Nabil El Zhar sjálfur er sáttur við hvernig hefur gengið á þessari leiktíð.
"Hingað til hefur þetta verið góð leiktíð fyrir mig. Framkvæmdastjórinn hefur gefið mér tækifæri og ég hef reynt að standa mig inni á vellinum. Þessi tækifæri hafa gefið mér mikið sjálfstraust og þá sérstaklega vegna þess að ég meiddist á ökkla þegar undirbúningstímabilið stóð yfir en þá gat ég ekki æft almennilega."
Þess má geta að Nabil vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum í úrsliakeppni Heimsmeistarakeppni undir 20 ára. Þá var hann valinn næst besti maður keppninnar á eftir Argentínumanninum Lionel Messi. Nabil er nú kominn í aðallandslið Marokkó. Hann hefur leikið sjö landsleiki og skorað tvö landsliðsmörk.