Forsíða

Frétt

27.08.2008 13:08 | Sf. Gutt

Ólympíuhetjur hylltar!

Ólympíuhetjur verða hylltar víðar en í Reykjavík í kvöld. Silfurstrákarnir okkar verða hylltir í Reykjavík síðdegis og fram á kvöld. Þrjár Ólympíuhetjur verða líka hylltar fyrir leik Liverpool og Standard Liege á Anfield Road í kvöld!

Javier Mascherano varð Ólympíumeistari með Argentínumönnum á sunnudaginn eftir 1:0 sigur á Nígeríu. Hann verður að sjálfsögðu með gullið sitt með sér í kvöld. Lucas Leiva hlaut bronsverðlaun með Brasilíumönnum og hann mætir með sín verðlaun. Þriðja Ólympíuhetjan er hnefaleikamaðurinn David Price sem er frá Liverpool. Hann vann til bronsverðlauna í sínum þyngdarflokki í Peking. Þremenningarnir munu ganga út á völlinn rétt fyrir leik í kvöld og víst er að þessum þremur köppum verður vel fagnað á Anfield Road.

Hvorki Javier eða Lucas verða í leikmannahópi Liverpool í leiknum í kvöld.

 

 


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin