Forsíða

Frétt

14.08.2008 10:08 | Grétar Magnússon

Verðum að bæta okkur

Maður leiksins gegn Standard Liege, Pepe Reina, veit að leikmenn liðsins þurfa að bæta leik sinn verulega ef ekki á illa að fara í seinni leiknum sem fram fer á Anfield eftir tvær vikur.

Leikmenn Liverpool verða að hysja upp um sig brækurnar strax á laugardaginn þegar þeir mæta Sunderland í fyrsta leik í ensku Úrvalsdeildinni.  Sunderland hafa verið duglegir á leikmannamarkaðinum í sumar og hafa styrkt sig mikið, það er því ljóst að leikurinn verður erfiður því Sunderland vilja sýna sig og sanna á heimavelli í fyrsta leik.

Pepe Reina, sem var hetja gærkvöldsins gegn Standard Liege sagði þetta þegar opinber heimasíða félagsins tók hann tali eftir að liðið lenti í Liverpool í morgun.

,,Við spiluðum virkilega illa og það er ljóst að við þurfum að bæta okkur fyrir leikinn á Anfield," viðurkenndi Reina.  ,,Það jákvæða í þessu er að við náðum góðum úrslitum, við héldum hreinu og þetta er enn í okkar höndum.  En við spiluðum ekki vel."

,,Ég veit ekki hvort að boltinn fór yfir línuna þegar ég sló hann í burtu," sagði Reina um atvikið snemma í fyrri hálfleik þegar hann bjargaði með ævintýralegri markvörslu.  ,,Ég verð að sjá þetta endursýnt í sjónvarpinu.  Að verja vítaspyrnur er alltaf erfitt en, eins og ég segi, þá náðum við þó að minnsta kosti góðum úrslitum en við verðum að bæta leik okkar."


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin