John Aldridge ánægður með komu Robbie

Það hafa margir Írar leikið með Liverpool í gegnum tíðina. Má þar nefna leikmenn á borð við Elisha Scott, Steve Heighway, Mark Lawrenson, Ronnie Whelan og Jim Beglin. Steve Finnan hefur verið fulltrúi Íra síðustu árin en nú hefur landi hans Robbie Keane bæst við. Þetta gleður Írann John Aldridge sem lék með Liverpool á sínum tíma. Hann var síðasti írski sóknarmaðurinn sem lék með Liverpool. Robbie hyggst fylgja fordæmi hans í markskorun.
"John Aldridge var síðasti írski sóknarmaðurinn hérna og við erum miklir félagar. Hann hefur sagt það lengi að ég ætti að leika með Liverpool og nú er ég hingað kominn. Ég á eftir að vera ánægður ef ég næ að standa mig jafn vel og hann gerði hérna. Hann var frábær sóknarmaður og ávann sér virðingu fólksins í Liverpool. Ég á líka eftir að vera ánægður ef ég á eftir að afla mér álíka virðingar hjá fólkinu hérna og hann gerði."
John Aldridge lék með Liverpool frá 1987 til 1989 og skoraði 63 mörk í 104 leikjum. Hann telur að landi sinn eigi eftir að gera góða hluti hjá Liverpool.
"Ég þekki Robbie mjög vel og ég held að það sé mikill fengur í honum fyrir okkur. Hann getur leitt sóknina einn eða spilað við hliðina á öðrum. Frá mínum sjónarhóli myndi ég telja það snjallt að láta hann spila við hliðina á Fernando Torres. Javier Mascherano gæti svo spilað aftarlega á miðjunni og það myndi gefa Steven Gerrard tækifæri á að skjóta sér fram í sóknina. Hljómar spennandi ekki satt? Robbie á örugglega eftir að skora mörk. Ef hann sleppur við meiðsli þá á hann eftir að skora 20 mörk. Fernando Torres mun skora hátt í 30 mörk og það má reikna með að Stevie skori 15 til 20 mörk. Þetta er því það sem okkur vantaði. Fólki finnst hann verða svolítið gamall en ég var 27 ára þegar ég kom til Liverpool og það kom ekki að sök. Ég skoraði mörk þangað til ég var kominn á fertugsaldur. Hann er vel á sig kominn og mun leggja sig allan fram fyrir Liverpool. Hreyfingar hans á vellinum eru frábærar. Mér fannst hann spila mjög vel við hliðina á Dimitar Berbatov þegar Tottenham kom til Anfield á síðustu leiktíð. Reyndar fannst mér þeir vera besta sóknarparið sem spilaði á móti okkur."
John finnst frábært að fá Robbie Keane til Liverpool og það spillir sannarlega ekki fyrir að hann skuli vera frá Írlandi!
"Persónulega þá finnst mér alveg frábært að fá fyrirliða írska landsliðsins til Liverpool. Í gegnum árin hefur verið sterk hefð fyrir írskum leikmönnum hérna og má nefna þá Ronnie Whelan, Jim Beglin og Steve Heighway. Ég er virkilega ánægður með að Robbie hafi nú bæst í þennan hóp."

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

