Godwin Antwi lánaður yfir ána
Liverpool hefur lánað Godwin Antwi yfir Mersey ána til Tranmere Rovers. Hann verður þar fram til áramóta. Godwin var í láni hjá Hartlepool United á síðustu leiktíð.
Godwin Antwi, sem er fæddur í Gana, er hæstánægður með að vera kominn til Tranmere. "Ég er mjög ánægður með að vera kominn til Tranmere. Þetta er gott félag og ég á eftir að öðlast góða reynslu þar. Ég hlakka til að hitta nýju liðsfélaga mína og fara að æfa til að undirbúa mig fyrir næstu leiktíð."
Ronnie Moore, framkvæmdastjóri Tranmere, er ekki síður ánægður með að hafa fengið Godwin til liðs við sig. "Mig langar að þakka Rafa Benítez og Liverpool Football Club fyrir að leyfa honum að koma hingað. Það er frábært að þessi tvö félög skuli geta unnið saman að því að hjálpa ungum leikmönnum að taka framförum. Godwin er mjög hæfileikaríkur varnarmaður sem við höfum verið að fylgjast með í nokkurn tíma. Þegar ég vissi að það væri hægt að fá hann hingað að láni greip ég tækifærið. Ég hugsa mér að láta hann spila hægri bakvörð."
Godwin varð Unglingabikarmeistari með Liverpool 2006 og var þá lykilmaður í meistaraliðinu. Hann er efnilegur varnarmaður en það er ekki gott að segja hvort hann verður einhvern tíma nógu góður til að spila í aðalliði Liverpool.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

