Forsíða

Frétt

24.07.2008 23:07 | HI

Sagan endalausa um Barry

Martin O'Neill, knattspyrnustjóri Aston Villa, er orðinn þreyttur á sögunni endalausu um Gareth Barry og vill að málið verði klárað sem allra fyrst.

O'Neill hefur þegar hafnað fjórum tilboðum frá Liverpool í Barry. "Liverpool hefur ekki formlega haft samband við okkur aftur. Þetta er mjög óþægileg staða. Einhvern tíma verður að setja tímamörk því að við getum ekki haldið svona áfram. Við þurfum að gera okkar áætlanir og ættum ekki að vera í gjörgæslu hjá Liverpool Football Club."

O'Neill íhugar alvarlega að nota Barry í Intertoto-keppninni á laugardag, en þá mætir Aston Villa Odense Boldklub frá Danmörku. "Hugarfar hans á vellinum hefur alltaf verið til fyrirmyndar. Intertoto-keppnin gefur okkur tækifæri til að komast í UEFA-keppnina, sem við ætlum okkur að komast í og Gareth átti stóran þátt í að koma okkur í þessa keppni í fyrra."

Nú er að sjá hvort einhver viðbrögð koma frá Liverpool eftir þessi orð frá O'Neill.

Þess má geta að stuðningsmenn Aston Villa eru ekki vel kátir með Gareth Barry og hann fékk að heyra það frá stuðningsmönnum liðsins þegar það lék æfingaleik fyrr í vikunni. Það er því spurning hvort Gareth á afturkvæmt í lið í herbúðir Aston Villa! Víst er að stuðningsmennirnn Aston Villa eru ekki kátir með fyrrum sinn mann eða þannig.

   


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin