Forsíða

Frétt

24.07.2008 11:07 | Grétar Magnússon

Kaupin á Ngog staðfest

Opinber heimasíða félagsins hefur staðfest kaupin á franska framherjanum David Ngog frá Paris Saint Germain.  Ngog er 19 ára gamall og er talið mikið efni.

Það að hann hafi aðeins skorað eitt mark í 18 leikjum í frönsku deildinni á síðasta tímabili má að miklu leyti skrifa á slælegt gengi Parísarliðsins enda hefur Ngog ávallt staðið sig mjög vel með frönsku unglingalandsliðunum.  Hefur hann skorað reglulega með öllum unglingalandsliðum og t.a.m. skoraði hann tvö glæsimörk í landsleik gegn Englandi á síðasta tímabili.  Á meðfylgjandi mynd má sjá hann berjast við tvo leikmenn Englendinga í umræddum leik.

Þess má til gamans geta að Ngog og Jean-Alain Boumsong, fyrrum varnarmaður Newcastle, eru frændur og er það nú ekki illa meint þó svo að undirritaður vonist til þess að Ngog geri betur en frændi sinn í ensku Úrvalsdeildinni.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • EJS
  • Ölgerðin