Sigur hjá varaliðinu
Varalið Liverpool vann á sunnudaginn sigur í æfingaleik. Leikið var gegn utandeildarliðinu Southport. Liverpool vann 3:1 sigur. Adam Hammill kom Liverpool yfir með fallegu bogaskoti rétt utan vítateigs. Jordy Brouwer jók svo forystuna með skoti af stuttu færi. Adam skoraði svo annað mark sitt. Markið var stórglæsilegt. Adam fékk boltann við miðju og lék inn í vítateig framhjá nokkrum varnarmönnum áður en hann renndi boltanum í markið! Heimamenn minnkuðu muninn úr vítaspyrnu.
Adam Hammill, sem er hér á mynd, átti stórleik með Liverpool. Bæði mörkin sem hann skoraði voru glæsileg og það seinna var alveg ótrúlegt. Það er spurning hvað verður um Adam á þessari leiktíð. Hann var í láni hjá Southampton á síðustu leiktíð en náði sér ekki vel á strik. Hann var leiktíðina áður hjá skoska liðinu Dunfermline og þar þótti hann standa sig mjög vel. Ekki er ólíklegt að hann fari í lán á þessari leiktíð og munu nokkur félög hafa sýnt því áhuga að fá hann til liðs við sig.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

