Kaupin á Cavalieri staðfest
Í dag voru kaupin á brasilíska markmanninum Diego Cavalieri staðfest. Cavalieri, sem er 25 ára, skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Cavalieri sagði þetta í sínu fyrsta viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Ég veit að það verður ekki auðvelt að komast í liðið. Ég horfði á nokkra leiki með liðinu í deildinni og Meistaradeildinni á síðasta tímabili og ég veit að Pepe Reina er mjög góður markvörður. En allir þurfa að berjast fyrir sæti sínu í liðinu og ég er viss um að samkeppni okkar verður heilbrigð."
,,Ég veit að ég þarf að vera þolinmóður og leggja hart að mér til að ná markmiðum mínum - en það er alltaf svona þegar maður kemur frá öðru landi. Maður þarf að aðlagast innan vallar sem utan og venjast því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. En með mikilli vinnu nær maður að aðlagast. Sjálfstraust mitt hefur komið mér þangað sem ég er í dag og kannski veit fólk af því sem ég áorkaði með Palmeiras í Brasilíu. Ég er viss um að ég muni einhvern daginn verða aðalmarkvörður félagsins en það mun aðeins koma með mikilli vinnu."
Cavalieri, sem segir að þeir leikmenn sem hann líti helst upp til séu landar hans Marcos og Taffarel, hefur ekki haft mikinn tíma til að átta sig á því að draumur hans um að spila í Evrópu sé að rætast, þar sem að allt gerðist mjög snögglega á einni viku. Þrátt fyrir að líf hans hafi nánast tekið U-beygju segist hann ekki hafa hikað við að pakka niður og flytja til Englands þegar Liverpool sýndu áhuga.
,,Mér finnst ég njóta forréttinda og ég er ánægður að hafa skrifað undir hjá Liverpool vegna þess að allir vita að þetta er eitt besta félagslið í heiminum. Nafnið Liverpool er þekkt um allan heim og það er mikill heiður að klæðast treyju liðsins. Draumur minn um að spila í Evrópu hefur ræst, þó svo að það hversu snöggt þetta gerðist alltsaman hafi aðeins haft áhrif á mig. Allt þetta gerðist á einni viku."
,,En ég fékk góðar móttökur frá liðsfélögum mínum og stjóranum, þannig að mér líður strax vel hér. Ég vona bara að ég geti brugðist rétt við þessu öllu saman. Rafa talaði lengi við mig daginn sem ég kom. Hann útskýrði fyrir mér hvernig knattspyrnan er hér og hversu frábrugðin hún er brasilískri knattspyrnu. Hann sagði mér einnig frá þeim skyldum og ábyrgð sem fylgir því að spila fyrir félag eins og Liverpool."
Cavalieri er þriðji Brasilíumaðurinn sem gengur til liðs við félagið en fyrir eru þeir Fabio Aurelio og Lucas. Hafa þeir félagar nú þegar boðist til að aðstoða Cavalieri við að setjast að á Englandi þó svo að það sé ekki eins erfitt og það var hér áður fyrr að flytjast til Evrópu frá Suður-Ameríku.
Aukinn fjöldi leikmanna frá Suður-Ameríku í ensku Úrvalsdeildinni er eitthvað sem Cavalieri er ánægður með og sér það ekki breytast í náinni framtíð.
,,Ég gat talað við Lucas og Fabio þegar ég kom og þeir tóku mér opnum örmum. Þeir sögðu að ef það væri eitthvað sem þeir gætu gert þá myndu þeir hjálpa mér. Ég er mjög ánægður með að ég skuli spila með löndum mínum. Ég held að gæði brasilískra leikmanna þýði auðvitað að þeir spila mikið í Evrópu. Á hverjum degi heyrir maður um nýja leikmenn sem eru keyptir frá Brasilíu. Einnig er mjög erfitt fyrir brasilíska knattspyrnu að keppa við þá evrópsku, sem er mun sterkari."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

