| HI

David Villa á listanum

Rafael Benítez viðurkennir að spænski landsliðsframherjinn David Villa sé á listanum yfir þá leikmenn sem hann vilji kaupa til Liverpool. Það gæti þó orðið erfitt að fá hann.

David Villa skoraði fjögur mörk í Evrópukeppni landsliða þegar Spánverjar urðu Evrópumeistara. Hann missti af úrslitaleiknum vegna meiðsla en varð samt markakóngur keppninnar. Hann og Ferando Torres náðu vel saman í keppninni og myndu því örugglega gera það hjá Liverpool líka. David lék einnig vel með Valencia á síðasta tímabili og skoraði 18 mörk fyrir félagið.

Nú er Peter Crouch á förum og ætla mætti að það þyrfti mann í hans stað. Rafael er að hugsa málið. "Við erum með Torres, Voronin, Kuyt, Babel og Steven Gerrard, sem getur spilað sem framherji númer tvö. En við ætlum að reyna að fá annan framherja til okkar. Við þekkjum öll Villa. Hann er á listanum hjá okkur en það verður kannski erfitt að fá hann."

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan