Forsíða

Frétt

09.07.2008 14:07 | Grétar Magnússon

Kaup á markmanni nánast í höfn

Diego Cavalieri, brasilískur markmaður frá Palmeiras í Brasilíu er mjög nálægt því að ganga til liðs við félagið.  Skv. tilkynningu frá Palmeiras hefur Cavalieri staðist læknisskoðun hjá Liverpool og verður keyptur á 3 milljónir punda.

Umboðsmaður Cavalieri, Juninho Parmigiani, sagði þetta við brasilíska fjölmiðla:  Við munum ganga frá öllu mjög fljótlega.  Hann hefur nú þegar gengist undir læknisskoðun, talað við nokkra af nýju liðsfélögum sínum og hann er mjög ánægður með það sem Rafa Benítez hefur sagt við hann."

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Palmeiras, Toninho Cecilio, sagði einnig:  ,,Ég hef talað við hann og hann er mjög ánægður.  Það á enn eftir að ræða nokkur atriði en það er ekkert sem getur komið í veg fyrir að málið klárist."

Kaupin á Cavalieri eru að mestu fjármögnuð með sölunni á Charles Itjande til Galatasaray fyrir 2 milljónir punda og kemur hann til með að keppa við Pepe Reina um sæti í byrjunarliðinu á tímabilinu.  Einnig er ekki ólíklegt að Cavalieri spili í Deildarbikarnum og FA Bikarkepninni líkt og Itjande gerði á síðasta tímabili.

Cavalieri er fæddur 1. desember árið 1982 og spilaði sinn fyrsta leik fyrir Palmeiras í 4-0 sigri gegn Rio Claro í júní 2002.  Hann var nálægt því að ganga til liðs við Inter Milan fyrir nokkrum árum síðan en þeir enduðu á því að kaupa landa hans, Julio Cesar í staðinn.  Cavalieri er með ítalskt vegabréf og mun því ekki þurfa á atvinnuleyfi í Bretlandi að halda.

Cavalieri hefur undanfarið verið varamarkvörður fyrir aðalmarkvörð Brasilíumanna, Marcos, sem spilar einnig með Palmeiras en Cavalieri á þó að baki yfir 100 leiki með félaginu.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan