| Grétar Magnússon

Það var fyrir ári síðan...

Þann 4. júlí 2007 setti Liverpool met í kaupum á leikmanni þegar ungur sóknarmaður að nafni Fernando Torres gekk til liðs við félagið.  Bjartsýnustu menn hefðu svo ekki getað spáð fyrir um framhaldið.

Torres var auðvitað einn efnilegasti leikmaður spænsku deildarinnar og hann var ekki lengi að stimpla sig inn í ensku úrvalsdeildina þegar hann skoraði í sínum fyrsta heimaleik gegn Chelsea í leik sem endaði 1-1.

Hann sló svo met Ruud Van Nistelrooy yfir þá erlendu leikmenn sem hafa skorað flest mörk á sínu fyrsta tímabili í deildinni með sínu 24. marki gegn Tottenham í lokaleik tímabilsins.  Alls urðu mörk hans í öllum keppnum 33 talsins.

Í fyrsta viðtali hans við opinbera heimasíðu félagsins sagði Torres:

,,Ég er mjög mjög ánægður.  Þetta var stærsta ákvörðun fótboltaferils míns en ég er kominn til sigursæls félags.  Þetta er félag meistara - eitt það stærsta sem til er.  Nú vil ég vera hluti af því og verða meistari líka og hjálpa félaginu að taka framförum."

,,Þegar maður elst upp á Spáni þá veit maður af öllum stóru félögunum þar, en maður fylgist einnig með í Evrópu og Liverpool eru ávallt áberandi.  Það var þannig hjá mér.  Ég á eldri bræður sem sögðu mér af leikmönnum eins og Keegan og Rush, en fyrsti leikmaðurinn sem ég man eftir að hafa séð sem stuðningsmaður er Robbie Fowler.  Mín helsta minning um félagið er ótrúleg velgengni félagsins í Evrópu, og ég fylgdist virkilega vel með liðinu þar."

,,Maður fær ákveðin tækifæri í lífinu.  Maður hefur ekki efni á því að missa af þeim vegna þess að þau koma aðeins einu sinni.  Ég hef verið hjá Atletico síðan ég var 10 ára, ég hef vaxið sem persóna og leikmaður þar.  En ég hef ekki fengið þau tækifæri til að spila í Evrópukeppni og ég held að ég verði nú að taka skrefið uppávið."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan