Spánverjar urðu á dögunum Evrópumeistarar í knattspyrnu. Liverpool átti fjóra leikmenn í landsliðshópnum og tveir léku með í úrslitaleiknum. Hér er ýmis fróðleikur um Evrópumeistarana.
-
Úrslitakeppni Evrópumóts landsliða fór fram í 13. sinn.
-
Úrslitakeppnin fór fram í Austurríki og Sviss.
-
Þeir Fernando Torres, Xabi Alonso, Alvaro Arbeloa og Jose Reina voru í landsliðshópi Spánverja.
-
Þeir spiluðu allir með Spánverjum á Evrópumótinu.
-
Fernando Torres skoraði sigurmark Spánverja í úrslitaleiknum þegar Spánverjar unnu Þjóðverja 1:0 í Vínarborg.
-
Xabi Alonso kom inn á sem varamaður í úrslitaleiknum.
-
Þetta var í annað sinn sem Spánverjar vinna Evrópukeppni landsliða. Áður unnu þeir keppnina árið 1964.
-
David Villa, leikmaður Valencia, varð markakóngur með fjögur mörk.
-
Xavi Hernández, leikmaður Barcelona, var kostinn besti maður keppninnar.
-
Fernando Torres var valinn í úrsvalslið keppninnar.
-
Leikmenn Liverpool hafa aldrei áður unnið Evrópukeppni landsliða.
-
-
Einn leikmaður Liverpool hefur orðið markakóngur í Evrópukeppni landsliða. Það var Milan Baros. Hann skoraði fimm mörk í úrslitakeppninni árið 2004.

Evrópumeistar Spánverja 2008

Fernando Torres: 5 leikir - 2 mörk.

Xabi Alonso: 4 leikir.

Alvaro Arbeloa: 1 leikur.

Jose Reina: 1 leikur.



