Barry ákveðinn í að fara til Liverpool
Liverpool hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á Gareth Barry fyrirliða Aston Villa. Liverpool hefur boðið tvisvar háa upphæð í Barry en Aston Villa hefur neitað tilboðum Liverpool og vilja ólmir halda fyrirliða sínum. Barry hins vegar segist staðráðinn í því að fara til Liverpool og að það sé ekkert sem að fái hann til að snúast hugur.
"Ég er búinn að gera upp hug minn, ég vil ganga til liðs við Liverpool. Ég skipti ekki um skoðun og það er kominn tími á að ég færi mig um set. Ég þrái að spila í Meistaradeildinni og þess vegna þarf ég að yfirgefa Villa."
Gareth Barry tjáði sig einnig um vonbrigði hans vegna skorts á samskiptum við framkvæmdarstjóra Aston Villa, Martin O'Neill. Eins er hann óánægður með að félagið hafi ekkert gert til að freista þess að halda honum hjá félaginu.
"Villa sögðu alltaf að þeir vildu að ég yrði um kyrrt en ég hef ekkert heyrt frá stjóranum í nokkrar vikur. Það eru sjö vikur síðan að tímabilið kláraðist og síðan þá hefur stjórinn gefið sér tíma til að vera þulur hjá BBC yfir Evrópumótið en hann hefur ekki gefið sér tíma til að tala við mig.
Rafael Benítez hefur hins vegar sýnt það hve mikið hann vilji fá mig til Anfield. Ég er vitaskuld upp með mér yfir því að einhver jafn sigursæll stjóri og Rafael Benítez hafi svona mikið álit á mér. Hann er heldur ekki hræddur um að verðsetja mig á svörtu og hvítu svo að allur heimurinn sjái. En hefur Villa boðið mér eitthvað til að sannfæra mig um að framtíð mín sé á Villa Park en ekki á Anfield? Nei, ekki neitt."
Það leikur enginn vafi á því að Barry yrði mikil viðbót við sterkt lið Liverpool og vonandi munu mál hans ráðast á allra næstu dögum enda eru aðeins þrír dagar í að félagsskiptaglugginn opnar og vill Rafael Benítez væntanlega hafa lið sitt sem klárast fyrir undirbúningstímabilið.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

