Ungverjinn ungi, Peter Gulacsi er hæstánægður að fá að læra af Pepe Reina en hann telur að spænski markvörðurinn sé einn sá besti í heiminum. Gulacsi spilaði reglulega með varaliðinu á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að landa Englandsmeistaratitlinum.
Gulacsi segir að Reina hafi yfir öllum þeim kostum sem toppmarkvörður þarf að búa og hann á erfitt með að finna veikleika hjá Spánverjanum.
,,Stundum fæ ég að vinna með Pepe Reina og það er augljóslega mjög hagstætt fyrir mig," sagði Gulacsi við LFC tímaritið.
,,Jafnvel þegar ég er ekki að æfa með honum þá fylgist ég með því sem hann gerir og auðvitað horfi ég á hann í leikjum líka. Hann er frábær markvörður - einn sá besti í heimi - og sú staðreynd að hann er enn ungur þýðir að hann verður bara betri. Hann er mjög fljótur og hann tekur oftast réttar ákvarðanir."
,,Dreifing hans á boltanum er svo einn þáttur þar sem hann skarar framúr. Hann vinnur ekki eins og venjulegur markvörður, hann er næstum því eins og auka varnarmaður. Hann er með fljóta fætur og hann stendur sjaldan á línunni án þess að blanda sér í leikinn. Allir ungu markverðirnir hjá félaginu vilja ólmir spila eins og hann."
,,Aðrir styrkleikar Pepe eru ekki eins augljósir. Einbeiting hans er frábær. Löngum stundum þarf hann ekkert að gera í leikjum en hann á samt stórkostlegar markvörslur þegar á þarf að halda. Líkt og allir markmenn gerir hann mistök en hann er fljótur að gleyma þeim. Það er merki um að andlegur styrkur hans er mikill. Ef ég get haft minn leik svipaðan og hans þá ætti ég að geta bætt mig mikið."
Gulacsi berst við David Martin um stöðu markvarðar í varaliðinu og eru þeir tveir fyrir aftan Charles Itjande í goggunarröðinni á Anfield. En það kemur ekki í veg fyrir að Gulacsi láti sig dreyma um að einn daginn verði hann orðinn nógu góður til að takast á við Reina um sæti í aðalliði Liverpool.
,,Það er áskorun, svo mikið er víst." sagði hann og vísar til þess að vera í baráttunni við Reina.
,,Það eina sem ég get gert er að njóta þess að spila fótbolta, halda áfram að leggja hart að mér og sjá hvað gerist."