Angel Vales í viðtali
Fáir vita kannski hver Angel Vales er en hann er þjálfari varaliðsins og yfirmaður tæknilegrar greiningar sem snýr meðal annars að því að meta og greina frammistöðu liðsins hverju sinni. Hann er hér í viðtali þar sem hann útskýrir starf sitt betur og hvers vegna hann metur starf Rafa Benítez svo mikils.
Spurningar blaðamanns eru feitletraðar.
Ég býst við því að það hafi verið mikil breyting að fara frá Universidade da Coruna til Liverpool ?
Þetta er öðruvísi vinna og hagnýtari. Ég vona að ég geti nýtt þessa nýju reynslu sem ég er að upplifa núna til þess að nýta megi hana á þeim bóklegu sviði í framtíðinni.
Hingað til, hefur þetta ævintýri á Englandi verið þess virði ?
Án nokkurs vafa.
Hvað hefur þú lært af Rafa Benítez ?
Mjög mikið. Til dæmis mikilvægi litlu hlutanna í taktískri vinnu. Hann er einn besti stjórinn í heiminum þegar kemur að taktískri vinnu. En þrátt fyrir það að hafa verið sigursæll þá leyfir hann sér aldrei að slaka á eða njóta einhvers heiðurs, hann er jafn kröfuharður á sjálfan sig og hann var í byrjun. Kröfurnar sem hann gerir til sjálfs sín eru þær sömu í dag og þegar ég hitti hann þegar hann var að vinna með unglingalið Real Madrid. Hann er alltaf að leita leiða til að bæta sig, til þess að nýta nýjustu tækni til þess að bæta frammistöðu. Hann er hæfileikaríkur frá taktísku sjónarhorni séð en þess utan býr hann einnig yfir mikilli vinnusemi og tiltrú á verkefninu. Fyrir mér er það að vera hluti af starfsliði hans blanda af ánægju, yfir því að vera meðal þeirra bestu og svo ábyrgð vegna þess hversu mikil pressa er á okkur sjálfum til að gera vel.
Er hann mjög kröfuharður á aðra ?
Það er ljóst að þar sem að hann er mjög kröfuharður á sjálfan sig að þá býst hann við því sama frá leikmönnunum.
Hvert er þitt hlutverk í starfsskipulagi Liverpool ?
Undir yfirumsjón Rafa Benítez, þjálfa ég varaliðið og svo er ég hluti af greiningarteyminu.
Varaliðið stóð sig nokkuð vel...
Við unnum deildina. Þetta er erfið deild. Lið okkar samanstendur af mjög ungum leikmönnum sem við vonumst til þess að verði framtíð félagsins eftir fjögur ár. Þetta eru landsliðsmenn fyrir heimalönd sín og eru mjög efnilegir. Á þessu tímabili spiluðu þeir Plessis, Emiliano Insua og Nabil El Zhar allir fyrir aðallið félagsins. Þetta er aðalmarkmið varaliðsins, að ásættanleg prósenta leikmanna endi með því að spila fyrir aðalliðið; það að vera meistarar sýnir það að Rafa Benítez vill búa yfir sterku varaliði.
Býrð þú yfir ákveðnu frjálsræði í starfi þínu ?
Já, innan þess ramma sem Rafa skilgreinir, þá geri ég það. En við megum ekki gleyma því að varaliðið deilir búningsherbergi með aðalliðinu og við æfum að mestu samtímis. Okkar leikmenn borða morgunmat með Torres, sem dæmi, og það er gott mál.
Og hvernig er svo Fernando Torres ?
Mjög góður. Fernando veit að hann getur bætt marga hluti. Og hann er hógvær strákur, sem hjálpar honum mikið í því að bæta sig. Auk þess er hann mjög metnaðargjarn. Á þessu ári var hann mikilvægur hluti liðsins. Hann skoraði mörg mörk og vann sér inn virðingu í Úrvalsdeildinni. Ég held að Rafa hafi unnið frábært starf með hann og Fernando endurgalt honum með frammistöðu sinni. Ég er viss um að hann muni ekki slá slöku við á næsta tímabili, hann mun reyna að bæta það sem hann gerði á síðasta tímabili eða að minnsta kosti vera á sama plani.
Hvernig er greiningarvinna þín ?
við erum fimm saman. Tveir ferðast um allt England og horfa á leiki, einn býr til vandaðar skýrslur um mótherja okkar, svo er maður sem sér um að klippa öll video-in og svo ég sjálfur. Ég samræmi og greini okkar leik. Ég reyni að safna saman öllum mögulegum upplýsingum um okkur þannig að Rafa geti greint það síðar og notað eins og hann vill til að bæta frammistöðu liðsins, sem þetta snýst auðvitað alltsaman um.
Ef eitthvað knattspyrnulið er meira en bara félag, þá er það Liverpool, ertu því sammála ?
Það eru nokkur lið á sama plani, sérstaklega á félagslegu plani. Við eigum ótrúlega stuðningsmenn, mikla hefð og sterkt gildismat eins og t.d. þá fórn og löngun til að bæta sjálfan sig til þess að komast í gegnum erfiðleika. Fólkið í Liverpool er vant því að eiga við erfiðleika að etja. Og allt þetta flyst yfir á liðið. Við erum kannski ekki sterkasta liðið á Englandi fjárhagslega séð, en við erum einstakt félag.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

