| Sf. Gutt

Krisztian Nemeth valinn í aðallandsliðið

Krisztian Nemeth hefur verið valinn í aðallandslið Ungverja. Val hans í aðallandsliðið sýnir vel í hversu miklu áliti hann er nú þegar orðinn þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall. Krisztian hefur leikið með yngri landsliðum Ungverjalands og jafnan vakið athygli. Sem dæmi má nefna að hann hefur skorað 17 mörk fyrir undir 19 og undir 21. árs landsliðin í aðeins 12 leikjum.

Krisztian sló í gegn með varaliði Liverpool á þessari leiktíð og varð markakóngur liðsins. Hann skoraði níu mörk í aðeins ellefu leikjum.

Núna um helgina var hann á varamannabekknum þegar Ungverjar léku æfingaleik við Króata. Leiknum lauk með 1:1. jafntefli. Markvörðurinn Peter Gulacsi var líka meðal varamanna.

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan