Ykkar skoðun
Miklar vangaveltur hafa verið um það hvort Peter Crouch muni verða seldur frá Liverpool í sumar. Við könnuðum ykkar álit á málinu á dögunum með því að spyrja hvort þið telduð að það ætti selja Peter Crouch frá Liverpool. Í ljós kom að nokkuð skiptar skoðanir eru á því hvort selja eigi Peter. Reyndar voru flestir á því að það eigi ekki að selja risann en það voru líka margir, lesendur Liverpool.is, sem vildu selja hann eða voru ekki vissir í sinni sök.
Peter Crouch, sem var markakóngur Liverpool á síðustu leiktíð, varð þriðji markahæsti leikmaður núna. Hann og Dirk Kuyt skoruðu ellefu mörk hvor. Mörkin skoraði Peter í 36 leikjum. Þess má geta að Peter skoraði í þremur síðustu deildarleikjum sínum í vor. Hann kom á hinn bóginn ekkert við sögu í tveimur síðustu leikjunum. Alls hefur Peter skorað 42 mörk fyrir Liverpool í 134 leikjum. En hér er niðurstaðan úr könnuninni.
Nei, hann er mikilvægur fyrir liðið 42,60 %
Já, hann er ekki nógu góður 30,00 %
Ég er ekki viss 27,40 %
Heildarfjöldi atkvæða: 730.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

