Gary Ablett vill titil í kvöld!
Gary Ablett, þjálfari varaliðsins, vill að liðið sitt verði Englandsmeistari varaliða í kvöld. Nokkra leikmenn vantar í lið Liverpool. Búið er að tilkynna liðið sem Liverpool teflir fram. Gary hafi þetta að segja fyrir leikinn.
"Þetta er stórleikur og sá mikilvægasti sem strákarnir hafa leikið á leiktíðinni. Við stefndum á, frá upphafi leiktíðar, að komast í þennan leik. Nú erum við komnir með rétt til að taka þátt í honum og nú er komið að því að standa sig og ná að vinna. Það er óheppilegt að nokkrir leikmenn eru meiddir og við höfum bara 15 eða 16 stráka leikfæra. Jay Spearing, Ray Putterill, Ryan Crowther og Daniel Ayala eru allir meiddir og Gerardo Bruno er með spænska landsliðinu á Evrópumótinu í Tyrklandi. Það hefði verið gott að hafa alla leikfæra en við treystum strákunum sem koma inn í liðið til að standa fyrir sínu í kvöld. Það getur ekki verið meiri hvatning til fyrir leikmennina en að spila fyrir framan fjölda áhorfenda á Anfield og keppa um bikar."
Gary Ablett er búinn að velja byrjunarliðið í kvöld og það skipa eftirtaldir leikmenn.
Peter Gulacsi, Stephen Darby, Emiliano Insua, Mikel San Jose, Ronald Huth, Damien Plessis, Nabil El Zhar, Lucas Leiva, Jordy Brouwer, Krisztian Nemeth og Ryan Flynn. Varamenn: Dean Bouzanis, Daniel Pacheco, Martin Kelly, Craig Lindfield og Andras Simon.
Leikurinn hefst þegar klukkuna vantar stundarfjórðung í sjö að íslenskum tíma.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

