| Sf. Gutt

Framkvæmdaleyfi veitt!

Borgarstjórn Liverpool borgar hefur veitt Liverpool Football Club leyfi til að hefja framkvæmdir við nýjan leikvang. Þetta er í þriðja sinn á fimm árum sem Liverpool  F.C. fær framkvæmdaleyfi til að reisa nýjan leikvang.

Söguna endalausu mætti nefna það ferli sem bygging nýs leikvangs við Stanley Park hefur verið í síðustu árin. Sú útgáfa sem nú hefur fengist leyfi fyrir kom fram í lok janúar. Þá talaði Tom Hicks um að framkvæmdir myndu hefjast undir vorið. Þær hafa á hinn bóginn ekki enn hafist!

Það er rétt að árétta það að þessi leikvangur sem nú á að rísa er ekki sá sem kynntur var í júlí á síðasta sumri. Segja má að þessi sé heldur minni í sniðum en sá var. Eins og áður segir þá er þetta þriðja framkvæmdaleyfið sem Liverpool F.C. fær til að reisa nýjan leikvang. Ef ferlið er rétt skilið þá þarf framkvæmdaleyfi á hverja nýja útgáfu. Af þeim sökum er þetta nýjasta framkvæmdaleyfi komið fram.

En mun þessi útgáfa verða að veruleika þannig að nýr leikvangur rísi? Ýmsir telja að svo lengi sem þeir George Gillett og Tom Hicks ná ekki sáttum, eða þá að einhver aðili kaupi annan þeirra eða báða út, muni enginn leikvangur rísa! Ástæðan fyrir þeirri skoðun er sú að nýr leikvangur kostar stórfé. Miklar efasemdir eru um að þeir Goerge og Tom muni leggja í að skuldbinda sig í slíkar stórframkvæmdir þegar þeir eru ekki betur samstíga en raun ber vitni. Það er því ekki ólíklegt að framkvæmdir við þennan leikvang muni eitthvað dragast í viðbót.

Hér eru myndir af nýjustu útgáfunni af nýja leikvangnum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan