| Ólafur Haukur Tómasson

Alonso allur að koma til

Komið hafa góðar fréttir frá herbúðum Liverpool en miðjumaðurinn Xabi Alonso gæti snúið aftur í lið Liverpool þegar liðið mætir Manchester United á sunnudaginn. Alonso er búinn að vera lengi frá vegna meiðsla í rist og er byrjaður að æfa aftur með liðinu, en slæmar fréttir fylgja stundum með góðum fréttum og er þetta eitt af þeim tilvikum. Bakvörðurinn Steve Finnan er tæpur fyrir leikinn.

Rafael Benítez tjáði sig um málið á opinberri heimasíðu Liverpool: "Alonso æfði með liðinu í dag og vonandi verður hann í lagi um helgina. Hann gæti átt í vandræðum vegna þess að hann hefur ekki æft með hópnum í langan tíma, en líkamlega séð er hann tilbúinn.

Steve Finnan er meiddur og við verðum að huga að honum og sjá til hvort að hann muni geta leikið um helgina. Daniel Agger mun þurfa örlítið lengri tíma í viðbót."

Meiðslalisti Liverpool sem að var langur hefur styst mikið á síðustu dögum en Fabio Aurelio, Harry Kewell og Xabi Alonso höfðu allir verið lengi frá og eru allir að verða heilir eða orðnir heilir af meiðslunum. Það styttist þó einnig í að Jermaine Pennant og Daniel Agger verði heilir.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan