| HI

Aurelio með fæturna á jörðinni

Fabio Aurelio segir að liðsmenn Liverpool muni ekki láta frammistöðuna gegn Besiktas og hrósið sem liðið hefur fengið í kjölfarið stíga sér til höfuðs - ekki frekar en að gagnrýni síðustu vikna hafi haft of mikil áhrif. Hann bendi á að þessi metsigur í meistaradeildinni þýði ekki að Liverpool sé besta lið í heimi og að mikið verk sé óunnið eigi liðið að komast upp úr riðlinum.

"Það er sjálfstraust í liðinu. Ef við vitum að við erum ekki allt í einu orðnir besta lið í heimi, rétt eins og við vissum þegar við vorum gagnrýndir að við værum ekki það lélegasta. Þetta var gott skref upp á við en eigum mikið verk óunnið gegn Porto og Marseille. Allir geta enn komist áfram en við vitum að það er undir okkur sjálfum komið hvort það gerist.

Við vitum að við erum mjög sterkir á Anfield og önnur lið munu hafa tekið eftir þessum úrslitum. Það sem við verðum að gera er að leggja áfram hart að okkur og hafa trú á okkur."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan