Borgarráð Liverpool hefur samþykkt teikningar af nýjum velli Liverpool FC. Hann mun taka 60 þúsund áhorfendur, en mögulegt er að stækka hann í 75.000 manna völl síðar.
Liverpool FC fékk í mars í fyrra leyfi til að byggja 60 þúsund manna völl en þegar nýu eigendurnir, Gillett og Hicks, komu til sögunnar létu þeir endurskoða hönnunina, og var hún birt í vor. Nú er búið að fá leyfi frá borginni til að byggja eftir þessum nýju teikningum.
Það ætti því ekkert að vera að vanbúnaði að hefja framkvæmdir þegar búið verður að fjármagna völlinn.