Forsíða

Frétt

05.11.2007 22:11 | HI

Torres byrjaður að æfa

Torres á æfingu í gær fyrir leikinn gegn BesiktasFernando Torres er byrjaður að æfa að nýju og er möguleiki á því að hann geti leikið gegn Besiktas á morgun. Hann meiddist sem kunnugt er gegn Arsenal fyrir rúmri viku. Hér til hliðar er einmitt mynd af Torres á æfingu í gær fyrir leikinn gegn Besiktas.

"Torres er næstum orðinn heill," sagði Benítez í dag en lét ekkert frekar uppi um hvort hann kæmi eitthvað við sögu á morgun.

Benítez sagði að Daniel Agger væri á góðu róli og væri farinn að hlaupa. Xabi Alonso verður hins vegar líklega frá í fjórar vikur vegna meiðslanna sem hann varð fyrir gegn Arsenal.


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan
  • EJS hýsir vefinn okkar