| Grétar Magnússon

Leikur kvöldsins ekki sýndur

Leikur Liverpool og Cardiff City í kvöld er ekki sýndur beint á einni einustu sjónvarpsstöð í heiminum !

Margir hafa nýtt sér að horfa beint á leiki á netinu en það skal tekið fram að ekki er hægt að horfa á leikinn á t.d. SopCast, PPLive, PPStream eða TvAnts netsjónvarpsstöðvunum.

Stuðningsmenn Liverpool verða því að láta sér nægja að fylgjast með textalýsingum á netinu á hinum ýmsu íþróttavefsíðum.  Þeir sem eru með E-Season miða á opinberu heimasíðu félagsins geta að sjálfsögðu hlustað á beina lýsingu af leiknum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan