Forsíða

Frétt

24.10.2007 11:10 | HI

Riise varar við vanmati

John Arne Riise vara félaga sína við því að vanmeta Besiktas fyrir leikinn í kvöld. Ekki eigi að fara í leikinn með það í huga að þeir séu lakara liðið á vellinum.

"Við vitum hvað er í húfi. Við höfum aðeins fengið eitt stig í riðlinum hingað til og það er ekki nógu gott. Við verðum að ná þremur stigum og vinna svo Besiktas aftur þegar þeir koma á Anfield. Þá eigum við aftur möguleika á að komast áfram.

Sigurinn gegn Everton gæti verið vendipunkturinn fyrir okkur. Við höfum dottið niður og tapað stigum í Evrópukeppninni og ensku úrvalsdeildinni og sigurinn gefur okkur því haldreipi sem hægt er að byggja á.

Það eru aðeins fjórir leikir eftir í riðlinum og því megum við ekki gera fleiri mistök."


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin