| HI

Tveir nýir til Liverpool

GulasciLiverpool hefur loks staðfest kaup á tveimur leikmönnum. Þetta eru spænski varnarmaðurinn Mikel San Jose og ungverski markvörðurinn Peter Gulacsi.

San Jose hefur gert þriggja ára samning við Liverpool en hann kemur frá Atletico Madrid. Gulacsi kemur á árs láni frá MTK Hungaria. Báðir munu þeir æfa á Melwood með varaliðinu.

Spænski varnarmaðurinn, Mikel San José Domínguez er fæddur í Iruñea, 30. maí 1989 og er kaupverðið um 270.000 pund.

Talsmaður Athletic Bilbao sagði eftirfarandi: "Þetta eru slæm tíðindi fyrir okkur en Mikel hefur valið Liverpool og það er vonlaust fyrir okkur að standast slíkum Evrópurisa snúning."

Mikel er mjög spenntur: "Þetta kom mér á óvart en ég hef gripið þetta tækifæri sem Liverpool hefur veitt mér. Ég er mjög spenntur en veit að mikil vinna er fram undan fyrir mig til þess að komast í aðalliðið."

Peter Gulacsi (á mynd) er 17 ára og kemur frá MTK Hungaria sama liði og Ungverjarnir tveir sem voru keyptir fyrr í sumar. Hann var fenginn til reynslu í 10 daga og þótti standa sig vel.

Gulacsi verður á láni fyrsta árið með möguleika á því að hann verði keyptur og mun sá samningur þá gilda til tveggja ára.

Svo virðist sem samningur milli Liverpool og MTK, sem undirritaður var fyrr í sumar, sé strax byrjaður að gefa af sér en tíminn einn mun leiða það í ljós hvort þessir leikmenn muni ná að leika með aðalliði félagsins. Það lofar þó góðu að þjálfarar félagsins sjái einhverja hæfileika í þessum ungu leikmönnum.

Gulacsi hafði þetta að segja við Sky Sports: ,,Ég vaknaði og fór að sofa á hverjum degi með það í huga að ég hefði möguleika á því að verða leikmaður Liverpool."

,,Umboðsmaður minn sagði mér frá áhuga annara félaga í Evrópu og á Englandi en mig langaði alltaf að fara til Liverpool. Pepe Reina sendi mér áritaða hanska frá sér í mars og ég verð að viðurkenna, að það var draumur minn að ég myndi kannski fá að æfa með honum einhvern daginn. Síðan þá má segja að ég hafi lifað í draumalandinu því draumar mínir hafa ræst."

,,Þegar ég kom hingað fyrst þá voru margir markmenn hjá félaginu og ég hreinlega hélt að félagið myndi ekki vilja fá mig á þessum tímapunkti en umboðsmennirnir mínir sögðu mér að búast við öðru. Þegar mér var svo sagt að ég myndi fá samning varð ég óendanlega glaður."


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan