Forsíða

Frétt

15.08.2007 16:08 | Grétar Magnússon

Ungverskur markmaður til liðs við félagið

Peter Gulacsi er 17 ára og kemur frá MTK Búdapest, sama liði og Ungverjarnir tveir sem voru keyptir fyrr í sumar.  Hann var fenginn til reynslu í 10 daga og þótti standa sig vel.

Gulacsi verður á láni fyrsta árið með möguleika á því að hann verði keyptur og mun sá samningur þá gilda til tveggja ára.

Svo virðist sem samningur milli Liverpool og MTK, sem undirritaður var fyrr í sumar, sé strax byrjaður að gefa af sér en tíminn einn mun leiða það í ljós hvort þessir leikmenn muni ná að leika með aðalliði félagsins.  Það lofar þó góðu að þjálfarar félagsins sjái einhverja hæfileika í þessum ungu leikmönnum.

Gulacsi hafði þetta að segja við Sky Sports:  ,,Ég vaknaði og fór að sofa á hverjum degi með það í huga að ég hefði möguleika á því að verða leikmaður Liverpool."

,,Umboðsmaður minn sagði mér frá áhuga annara félaga í Evrópu og á Englandi en mig langaði alltaf að fara til Liverpool.  Pepe Reina sendi mér áritaða hanska frá sér í mars og ég verð að viðurkenna, að það var draumur minn að ég myndi kannski fá að æfa með honum einhvern daginn.  Síðan þá má segja að ég hafi lifað í draumalandinu því draumar mínir hafa ræst."

,,Þegar ég kom hingað fyrst þá voru margir markmenn hjá félaginu og ég hreinlega hélt að félagið myndi ekki vilja fá mig á þessum tímapunkti en umboðsmennirnir mínir sögðu mér að búast við öðru.  Þegar mér var svo sagt að ég myndi fá samning varð ég óendanlega glaður."


Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin