Þrátt fyrir að keppnistímabilið sé búið þá má segja að púlið byrji núna fyrir alvöru. Ástæðan er að Liverpool Football Club og hinir stórkostlegu stuðningsmenn félagsins þurfa á öllu sínu að halda til að hefja vinnu, á þessu mikilvæga sumri, sem miða á að því að koma okkur aftur í hóp þeirra bestu. Sem sagt á toppinn.
Fyrst þurfum við af vægðarleysi að losa okkur við þá leikmenn sem ekki eru nógu góðir til að klæðast rauðu treyjunni. Það er of mikið af mönnum sem ekkert gagn gera á mála hjá okkur og ef okkur tekst að fá eitthvað fyrir þá flesta þá gætum við nurlað saman peningum til að eyða. Svo bætist við það fjármagn sem eigendurnir ákveða að nota. Ég á von á að Joe Cole fari. Hann hefur hæfileika en meiðsli hafa greinilega tekið toll af honum og hann er ekki eins góður og hann var. Hann var ekki fastamaður hjá Chelsea og mér sýnist framtíð hans ekki vera á Anfield.
Við verðum að kaupa eingöngu leikmenn sem eru í hæsta gæðaflokki og eins mjög efnilega svo við getum alltaf keppt við bestu liðin. Við þurfum hraða í liðið og góða leikmenn á kantana. Eins þarf að styrkja miðjuna. Ég er ánægður með að heyra að við ætlum bara að fá leikmenn sem eru í fremstu röð því það sendir skilaboð um að við ætlum okkur eitthvað og meira. Við höfum degist aftur úr og hvorki komist í Meistara- eða Evrópudeildina. Þessu þarf að breyta og það strax. Ef satt skal segja þá er það eigendunum og öllum öðrum til hróss að við skulum tala svona digurbarkalega.
John Henry, Tom Werner og allir hjá FSG hafa lagt sig fram um að kynnast Liverpool F.C. sem best og deila draumum stuðningamannanna. Mér finnst það borðliggjandi að þeir hafa hug á að liðið verði sigursælt í stað þess að hugsa um að græða á því eins og þeir Hicks og Gillett reyndu með engum árangri.
Það kominn tími á uppreisn á Anfield og hún þarf að byrja núna. Allt virðist vera komið í lag. Við skulum því gleyma þessari leiktíð, hún er hvort sem er að baki, og halda áfram sameinuð fram á veginn. Liverpool aðferðin, The Liverpool Way, er komin aftur og það er búið að varða leiðina. Við skulum drífa okkur áfram því það má engan tíma missa.
Tökum bikarkeppnirnar alvarlega
Ég vildi að við hefðum komist í Evrópukeppni á næsta keppnistímabili en eftir töp fyrir Spurs og Villa í tveimur síðustu leikjunum fauk sú von út í veður og vind. Það er þó alveg á hreinu að það er ekki æskilegt að spila á fimmtudögum og svo á sunnudögum. Ég, eins og margir stuðningsmenn, sakna þessa leikjafyrirkomulags ekki.
Þessi niðurstaða þýðir þó að við verðum að taka F.A. bikarinn og Deildarbikarinn mjög alvarlega. Auðvitað verður deildin efst á blaði en við höfum ekki unnið einn einasta bikar frá 2006 og það er alltof langur tími fyrir svona félag. Þar af leiðir að við höfum ekki ennþá spilað á nýja Wembley. Það yrði því frábært að ná góðri ripsu í F.A. bikarnum á næsta keppnistímabili og gefa stuðningmönnunum ferð á úrslitaleik því þeir eiga það skilið.
Þar sem ekki verður keppt í Evrópukeppni getur Kenny Dalglish valið sterkara lið til leiks í þessum keppnum en hann gæti venjulega gert. Ef við náum að færa okkur þetta í nyt og mynda góða stemmningu í heimakeppnunum gæti það bætt upp skort á Evrópuknattspyrnu. Við verðum að komast aftur í eitt af fjórum efstu sætunum og beinustu leið í Evrópukeppni á nýjan leik. Ég vona að við getum í leiðinni bætt við samanlagða bikaratölu og skákað Manchester United sem enn hafa ekki, þrátt fyrir að vera drjúgir með sig, ekki enn slegið okkur við í samanlögðu.
Tommy Smith