Ef einhver vafi var á því hvort Pepe Reina ætlaði sér að vera áfram á Anfield þá var gert út um það mál í þessari viku. Hvort sem Fernando Torres áttaði sig ekki á eða vildi ekki skilja þann uppgang sem er hjá Liverpool þá var Pepe nógu snjall til að átta sig á því og ákveða, eftir allt, að vera áfram.
Þetta eru auðvitað frábærar fréttir vegna þess að hann er einn besti markmaður í heimi. Miðað við hversu snjall hann er í að senda boltann og eins leikskilning hans þá held ég að hann gæti spilað sem útileikmaður hjá okkur ef á þyrfi að halda. Hversu margir markmenn hlaupa svo völlinn á enda til að fagna mörkum eins og hann hefur gert? Ástæðan er sú að hann er ekki bara markmaður í heimsklassa. Hann er líka mikill liðsmaður sem býr yfir miklum eldmóði.
Liverpool þarf að refsa liðum
Leikmenn Liverpool naga sig líklega í handarbökin þegar þeir eru að undirbúa sig fyrir síðasta leik leiktíðarinnar sem verður útileikur á móti Villa á morgun. Fyrir viku gekk liðinu allt í haginn og það hafði fimmta sætið og þátttöku í Evrópukeppni í hendi sér. En svo fór allt á versta veg. Eftir að hafa gengið frá Fulham kom skellur gegn Spurs og þeir komust upp fyrir okkur.
Mér fannst við eiga mikla sök sjálfir á því hvernig fór síðasta sunnudag. Á morgun þarf að draga lærdóm af þeim mistökum og svo áfram í framtíðinni. Þeim Rauðu hefur verið hrósað mikið fyrir góð úrslit og góða leiki og ég er einn af þeim sem hafa hrósað liðinu. En þegar allt gengur að óskum er alltaf meiri hætta á að menn verði verði of værukærir. Ég óttast að þetta hafi gerst í síðustu viku. Í staðinn fyrir að byrja á fullum krafti og hrekja mótherjana aftur á völlinn þá var enginn drift í liðinu frá byrjun. Leikmenn Spurs mættu okkur framarlega á vellinum, unnu baráttuna um miðjuna og náðu forystu. Vissulega gaf Howard Webb, besti vinur Alex Ferguson, þeim víti sem var alveg út í hött. Vítið innsiglaði sigurinn en við verðskulduðum ekki að vinna.
Fólk var fram að leiknum við Spurs að furða sig á því að við hefðum ekki saknað Steven Gerrard neitt en þarna kom að því að við söknuðum hans og það mikið. Hann er leikmaður í heimsklassa og við höfum séð margoft, þegar við höfum lent í vandræðum, hvernig hann hefur dregið okkur út úr vandræðum. Í síðustu viku var enginn til að bjarga málum. En ef liðið hefði byrjað leikinn almennilega hefðum við ekki þurft á neinum björgunaraðgerðum að halda.
Liðið hefur verið í mikilli framför undir stjórn Kenny Dalglish og ein slæm úrslit draga ekki úr þeim framförum. En við verðum að læra að láta hrós ekki stíga okkur til höfuðs. Hvort sem vel eða illa gengur þá verðum við að vera ákveðnir í að refsa mótherjunum okkar um leið og leikurinn byrjar. Mín skoðun er sú að maður er bara jafn góður og næsti leikur gefur til kynna en ekki sá síðasti.
Tommy Smith