Margir hafa verið að segja stuðningsmönnum Liverpool að koma niður á jörðina og varast að vera of bjartsýnir fyrir næsta keppnistímabil. Ég myndi nú bara segja þeim sömu að halda sér saman. Ef ekki er hægt að vera spenntur og vonast eftir endurreisn Liverpool undir stjórn Kenny Dalglish yfir hverju er þá hægt að vera spenntur?
Vissulega er mikil og erfið vinna framundan og það hefur nú nokkrum sinnum, á síðustu árum, verið von á endurreisn liðsins sem svo ekki hefur orðið. Miðað við þá reynslu má segja að eðlilegt sé að sumir séu varkárir. En Rauðliðar eru núna að spila bestu knattspyrnu sem hefur sést í áraraðir. Ég er alveg hanndviss um að ef liðið hefði leikið svona frá upphafi leiktíðar hefðum við unnið deildina. Svo vel er liðið að spila.
Allir, og ég var ekki nein undantekning, héldu að leikurinn gegn Fulham síðasta mánudag myndi verða erfiður en liðið gekk frá leiknum með enn einum kröftugum leik þar sem menn voru mjög hreyfanlegir. Núna halda strákarnir áfram að sækja til að skora meira frekar en að spila af varkárni. Af þessum sökum var ég gríðarlega ánægður með að Kenny Dalglish var ráðinn framkvæmdastjóri til framtíðar. Hann hefur geysilega mikla þekkingu á knattspyrnu og þessu knattspyrnufélagi. Hann er búinn að byggja upp sjálfstraust, trú og liðssamvinnu. Nokkrir leikmenn eins og Maxi Rodriguez hafa gerbreyst og uppaldir ungliðar á borð við Jay Spearing og John Flanagan hafa fengið tækifæri.
Ég veit að stuðningsmennirnir vilja ekki vera of öruggir með sig og það er alveg rétt. Kenny mun þurfa á öllum stuðningi að halda, frá öllum í kringum sig, til að halda þessu góða gengi áfram þegar næsta leiktíð hefst. Markmiðið er að koma Liverpool aftur á toppinn eins og Bill Shankly gerði.
Ég hef einföld skilaboð til stuðningsmannanna. Hlutirnir eru á uppleið og stuðningsmennirnir ættu að vera eins spenntir og bjartsýnir og þá langar til. Kraftur þeirra og trú getur drifið liðið áfram á næstu leiktíð og við getum án nokkurs vafa komist aftur á toppinn ef við höldum áfram á þessari braut. Það er dásamlegt að sjá stuðningsmennina, sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, með bros á vör á nýjan leik. Ég myndi segja að þeir ættu að halda áfram að brosa og trúa á mjög bjarta framtíð.
Andy á eftir að verða lykilmaður
Það var áhugavert að lesa grein eftir Dave Prentice í Echo í gærkvöldi þar sem hann velti því fyrir sér hvort Andy Carroll myndi passa inn í Liverpool liðið þegar hann kemur eftir meiðsli. Liðið skoraði jú þrettán mörk í þremur leikjum og ekkert þeirra var skorað með skalla.
Þetta er áhugaverður punktur en ég efast ekki um að Andy kemst auðveldlega í liðið. Hann er stór strákur og mjög góður á skallann en hann er líka snjall með boltann á jörðinni, hefur góðan leikskilning og er fljótur. Hann færir liðinu líka aðra vídd sem er mjög mikilvægt. Andy er líka örugglega spenntur yfir því sem hefur verið að garast núna á Anfield og hefur án efa hug á því að taka sjálfur þátt í því. Ég efast ekki um að hann mun eiga bjarta framtíð í rauðu treyjunni.
Tommy Smith