Það var gott að lesa að forstjóri Liverpool Ian Ayre telur að nú sé virkileg eining ríkjandi hjá félaginu og allir stefni í sömu átt. Ef það á að takast að komast í hóp þeirra bestu verða allir að gefa allt sitt í verkefnið. Einn maður öðrum fremur hefur sýnt rétta liðsandann og mikið af honum í áraraðir. Jamie Carragher.
Á mánudaginn, ef allt gengur eftir, verður hann búinn að spila fleiri leiki með Liverpool fyrir utan Ian Callaghan. Sex hundruð sextíu og sex leikir eru alveg frábært afrek enda er Jamie frábær leikmaður. Hann er gegnheill Scouser og ef eitthvað einkennir okkur þá stöndum við saman þegar á móti blæs. Þegar herðir að er enginn betri en Jamie.
Hann hefur verið stórkostlegur leikmaður og hann er það ennþá. Ef satt skal segja þá held ég að hann gæti spilað nokkur ár í viðbót. En það er ekki nóg með það. Jamie er nú til dags holdgerfingur Liverpool F.C. Hann og Steven Gerrard hafa verið miklir leiðtogar úti á vellinum og fórna sér fullkomlega þegar þeir eru komnir í rauðu treyjuna. Svona er alveg til fyrirmyndar og þá sérstaklega fyrir unga fólkið.
Það mun enginn nokkurn tíma slá leikjametið hans Cally sem er rúmir 800 leikir. En Jamie má sannarlega vera stoltur af því að vera næstur á glæstum heiðurslista Anfield.
Ferill Sami á enda
Þá er loksins komið að því að Sami Hyypia, sem er 37 ára, hætti að spila knattspyrnu. Sami var frábær varnarmaður og þjónaði félaginu frábærlega. Hann minnti um margt á gamla félaga minn Ron Yeats. Ég hafði þá ánægju að horfa á Liverpool og Newcastle, með Stóra Ronnie, í síðustu viku og hann lék við hvern sinn fingur.
Það var Ronnie sem fann Sami þegar hann var yfirnjósnari á Anfield á tíunda áratugnum og það kom í ljós að hann dæmdi rétt um hæfileika hans. Sami var mjög svipaður leikmaður og Ronnie. Stór, sterkur, mikill íþróttamaður, sterkur í loftinu og skoraði líka mikilvæg mörk af og til. Ég er viss um að þessir hæfileikar hans vöktu áhuga Ronnie enda hafði hann þá sömu. Ég veit að Ron er innst inni stoltur af því að hafa átt þátt í að fá Sami til Anfield árið 1999.
Tommy Smith