Það verður að hrósa Carlo Ancelotti fyrir að leggja upp rétta leikaðferð á Anfield. Framan af virtist Chelsea ætla að spila af mikilli varkárni gegn Liverpool. Liðið virtist vera sátt með að spila frekar aftarlega og koma í veg fyrir að við næðum að komast nærri marki þeirra. En þeir pressuðu alltaf á Liverpool og það olli mistökunum sem gáfu Chelsea fyrra markið.
Þegar maður er að spila knattspyrnu er hugsunin að spila boltanum fram en ef það er ekki hægt lítur maður til hliðar og svo til baka. Chelsea stillti sínum mönnum þannig upp að það var erfitt fyrir Steven Gerrard að gera annað en senda boltann aftur í þeirri stöðu sem hann var í. Didier Drogba notfærði sér svo mislukkaða sendingu hans og gerði það sem hann er bestur í og kom Chelsea yfir.
Carlo Ancelotti var búinn að vinna heimavinnuna sína. Leikmenn Liverpool eiga það til að líta ekki fyrst eftir sendingum fram völlinn heldur fyrst til hliðar og svo aftur. Steven mun verða fyrstur til að játa mistök sín en staðsetning leikmanna Chelsea gáfu honum fáa kosti í stöðunni og ollu því að hann gerði mistök. Liverpool hafði fram að þessu verið með sterka stöðu í leiknum en fyrsta markið breytti gangi leiksins. Ef staðan hefði verið markalaus í hálfleik er ég viss um að Chelsea hefði breytt leikaðferð sinni. En leikaðferðin sem lagt var upp með skilaði sínu og Carlo á hrós skilið fyrir að hitta naglann á höfuðið. Mér fannst alltaf líklegt að fyrsta markið myndi ráða miklu og leikurinn hefði þróast öðruvísi ef Liverpool hefði skorað á undan.
Þreyta hafði líka mikið að segja. Tapið í undanúrslitum Evrópudeildarinnar nokkrum dögum áður sat í leikmönnunum. Þreyta hefur lítil áhrif ef liðið er á sigurbraut en hún segir til sín ef það er að tapa. Þá eru menn þreyttir bæði líkamlega og andlega. Leikmenn eins og þeir Jamie Carragher og Dirk Kuyt eru búnir að spila næstum því hvern einasta leik á leiktíðinni og það endar með því að þreytan nær tökum á mönnum. Þetta er búin að vera löng leiktíð og 120 mínútna leikur á móti Atletico Madrid á fimmtudaginn kom Chelsea vel.
Ekki það versta að missa af Meistaradeildinni
Það er nú kannski ekkert stórmál að Liverpool missi af Meistaradeildinni í eitt ár en félagið má ekki við því að ná ekki sæti í henni í mörg ár. Það kæmi mjög illa við fjárhaginn að missa af keppninni í tvö eða þrjú ár. Liverpool þarf þó að taka vel á til að ná fjórða sætinu.
Ef Tottenham nær sætinu á félagið möguleika á að fá þekkta leikmenn til sín. Manchester City á eftir að eyða peningum í menn hvort sem þeir komst í keppnina eða ekki. Liverpool sér nú að það er ekki sjálfsagt mál að vinna sér inn sæti í Meistaradeildinni á hverju ári. En það þarf að vinna sér aftur sæti í keppninni sem allra fyrst.
Það verður að koma eigandamálum LFC á hreint
Fyrir síðustu leiki hefur mikið verið rætt um stöðu eigenda Liverpool og framkvæmdastjóra liðsins. Það þarf að koma þessum málum á hreint sem fyrst og það er ekki hægt að byrja nýja leiktíð með þau óleyst. Rafa Benítez hefur sagt að hann þurfi fimm nýja leikmenn til að koma liðinu almennilega í toppbaráttuna en það er óljóst hvaðan fjármagn í það á að koma ef ekki finnast nýir eigendur.
Svo má líta á hvað gerðist í fyrra. Þá var liðið rétt á eftir Manchester United í deildinni. Af hverju tókst ekki að gera aftur atlögu að titlinum? Frá því í fyrra eru bara þrír leikmenn, Xabi Alonso, Sami Hyypia og Alvaro Arbeloa, farnir. Þeirra í stað komu þeir Alberto Aquilani, Sotirios Kyrgiakos og Glen Johnson. Stærsti munurinn á þessum tveimur leiktíðum er að á þessari hafa alltof margir leikmenn ekki leikið vel og þeir sömu leikmenn ættu að geta náð sér aftur á strik. Hjá svona stóru félagi verða menn að standa sig á hverju ári og þeim væntinum fylgir álag.
Núna er bara einn leikur eftir gegn Hull sem fer fram nú um helgina og eftir hann verða menn að staldra við, fylkja liði og spyrja hvaða stefna skuli tekin. Knattspyrnufélagið sjált er það mikilvægasta í þessu öllu. Það er öllu og öllum stærra og mikilvægara. Menn eins og Bill Shankly, Bob Paisley, Kenny Dalglish hafa leikið stór hlutverk en félagið stendur þeim og öllum öðrum ofar. Við verðum að koma Liverpool aftur á þann stall sem liðið á að vera á. Það á að vera í baráttu um titla og vinna titla.
Ian Rush