Forsíða

Pistlahorn - Steven í gang á réttum tíma



Það var frábært að sjá Steven Gerrard skora og vera með bros á vör í stórsigri Liverpool í Burnley. Seinna mark hans var sérlega fallegt og hann var sjálfum sér líkur. Ef Liverpool á að geta endað þessa erfiðu leiktíð vel þá verður Steven að spila svona vel eins og hann gerði í þessum leik. Þar sem Ferandno Torres er meiddur þá verður mikið traust lagt á herðar Steven í leiknum gegn Atletico Madrid á Anfield á fimmtudagskvöldið. Vonin um áframhald byggist að miklu á framgöngu hans.

Fyrri leikurinn olli vonbrigðum en ég hef fulla trú á að við getum snúið blaðinu við eftir 1:0 tap og bókað fer til Hamborgar þann 12. maí. Bikarinn sem þar verður barist um er vissulega ekki sá sem við vonuðumst eftir að vinna í byrjun leiktíðar en það yrði mikið afrek að vinna hann. Stuðningsmönnunum finnst mjög gaman að fara til að horfa á úrslitaleiki og það væri skemmtilegt að vinna fyrsta úrslitaleikinn í Evrópudeildinni eftir að keppnin var endurhönnuð. 

Atletico er með þokkalega gott lið og í þeirra röðum eru nokkrir hættulegir sóknarmenn. Við þurfum að fara til leiks með sama hugarfar og í átta liða úrslitunum gegn Benfica. Við þurfum að spila af krafti, spila boltanum snöggt á milli og ráðast til atlögu frá fyrstu mínútu. Atletico má ekki fá neinn frið með boltann. Útlensk lið eru ekki vön hraðanum í ensku knattspyrnunni og við þurfum að spila eins og þetta væri grannaslagur. Ég held að þeir haldi ekki út ef við herjum á þá frá byrjun. En við gætum lent í vandræðum ef við byrjum varlega og ætlum að enda leikinn af krafti.

Hættan liggur í því að Atletico skori útimark og ef það gerist þá þurfum við að skora þrjú mörk. Ég myndi ekki missa trú á áframhald ef þeir skora eitt mark snemma í leiknum en ef við værum 2:0 yfir þegar tíu mínútur væru til leiksloka og færum að reyna að verja forskotið færi ég að ókyrrast. Allir vita hversu stórt hlutverk áhorfendur á Anfield leika á Evrópukvöldum og ég er viss um að það verður mögnuð stemmning á leiknum. Stuðningsmennirnir eiga eftir að mæta ákveðnir til leiks og leikmenn Liverpool verða að færa þeim eitthvað til að kætast yfir. 

Ég vona virkilega að Dirk Kuyt nái sér af kálfameiðslunum í tæka tíð. Dirk er leikmaður sem mjög gott er að hafa í svona leik því hann leggur sig alltaf allan fram. Ég sagði fyrir rimmuna við Benfica að liðið sem kæmist áfram úr þeirri viðureign myndi vinna bikarinn og ég trúi enn að svo fari. Við höfum venjulega spilað vel á heimavelli og ég vona að við getum hlakkað til þess að Liverpool spili við Fulham í úrslitaleiknum.

Liverpool má ekki slaka á gegn Chelsea
 
Liverpool vill ekki að Manchester United setji nýtt Englandsmeistaramet með því að vinna titilinn í 19. sinn en það þýðir ekki að liðið gefi eitthvað eftir gegn Chelsea á Anfield á sunnudaginn. Chelsea vill auðvitað ekki þurfa að spila á útivelli við Liverpool núna um helgina. Við unnum United á heimavelli fyrr á leiktíðinni og við getum vel lagt Chelsea að velli. Það er enn verið að berjast um fjórða sætið og þeir Rauðu hafa að miklu að keppa. Þess vegna er mikilvægt að vinna síðasta heimaleikinn.

Þessi staða minnir á þegar Liverpool spilaði við Blackburn á síðasta degi keppnistímabilsins 1994/95. Stuðningsmennirnir vildu að Blackburn, sem Kenny Dalglish stjórnaði, myndi hafa betur í titlbaráttunni við United þá leiktíðina en það kom ekki í veg fyrir að Liverpool mætti til leiks eins og atvinnumönnum sæmir að gera. Þegar upp var staðið endaði þetta fullkomlega. Liverpool vann leikinn en það kom ekki í veg fyrir að Blackburn næði meistaratitlinum. Það sama gæti gerst núna því United á líka erfiðan leik á útivelli á móti Sunderland á sunnudaginn. Mér kæmi ekki á óvart ef bæði liðin, sem eru að berjast um titilinn, myndu misstíga sig.

UEFA hefur gert mistök með miðamálin

Ef Liverpool kemst í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þá fær félagið aðeins 12.000 miða á leikinn og það er rangt. Það verður að fara að láta liðin, sem komast í úrslit, fá stærra hlutfall af miðum og Knattspyrnusamband Evrópu ætti að taka tillit til þess hversu margir koma jafnan á heimaleiki liðanna sem í hlut eiga. Það mæta fleiri á leiki Liverpool en Fulham og ef þau lið myndu mætast í úrslitaleiknum þá ætti sú staðreynd að endurspeglast í því hversu mörgum miðum yrði úthlutað til félaganna.

Það er frábært að vera kominn aftur á Anfield

Ég er virkilega ánægður með að vera farinn að vinna aftur hjá Liverpool. Núna verð ég sendiherra félagsins fyrir knattspyrnuskóla sem það ætlar að reka. Ég lék tvívegis með félaginu og svo var ég þjálfari um tíma þegar Gerard Houllier stjórnaði liðinu. Félagið hefur því verið stór hluti af lífi mínu. Það var gaman að fá boð um að koma aftur til starfa hjá félaginu og þetta er spennandi starf. Ég er líka þakklátur forráðamönnum Liverpool fyrir að leyfa mér að halda áfram sem stjórnandi afreksstefnu Wales. Það hefur verið mjög gefandi starf.

Ég er búinn að ferðast út um allan heim síðustu 10 árin og á ferðum mínum hef ég sjálfur upplifað þann áhuga sem víða er á Liverpool. Ég er búinn að afla mér þjálfararéttinda og ég veit, eftir ferðir mínar þangað, hvernig landið liggur í Austurlöndum fjær og Miðausturlöndum. Markaðsdeild Liverpool hefur unnið frábært starf á síðustu árum en það má ná enn betri árangri í markaðsstarfi því félagið á svo marga aðdáendur. Það er ekki horft eins mikið á neina deild í heiminum eins og Úrvalsdeildina.  Þó okkur hafi ekki gengið eins vel í deildinni og Manchester United síðasta áratuginn þá erum við ennþá það lið sem á flesta stuðningsmenn.

Ian Rush

Leikjahornið

Leikur Úrslit
LFC - Brighton 19.feb. 16:30
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
LFC - Arsenal 03.mar. 12:45
Leikur Úrslit
Man Utd. - LFC 2 - 1
LFC - Tottenham 0 - 0
Wolves - LFC 0 - 3

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin