Það kom mér ekkert á óvart að heyra að Fernando Torres muni ekki spila meira á þessu keppnistímabili. Þetta voru slæmar en ekki óvæntar fréttir. Það er rétt að hafa í huga að síðustu keppnistímabil hefur hann ekki varla fengið neina hvíld. Hann hefur spilað í erfiðri deildarkeppni heima og eins í Meistaradeildinni. Svo hafa Evrópukeppni landsliða og Álfukeppni tekið við.
Þegar Fernando meiddist snemma á leiktíðinni vonaðist maður kannski til þess að hann fengi þá hvíld en hún skilaði sér ekki. Fólk var fljótt að gagnrýna Rafa Benítez þegar hann skipti Fernando af velli í Birmingham þegar 25 mínútur voru eftir. Það kom á daginn að framkvæmdastjórinn vissi eitt og annað sem við hin vissum ekki. Hann vissi að Fernando var vondur í hnénu og vildi fara varlega með hann það sem eftir var af leiktíðinni. Við vitum hversu mikið vantar í lið Liverpool þegar hann getur ekki spilað. En nú er spurt. Hver á að leysa hann af?
Þeir Dirk Kuyt, David Ngog og Ryan Babel eru auðvitað líklegir en einn leikmaður hefur ekki verið nefndur. Þetta er Dani Pacheco. Spánverjinn ungi er vissulega snjall og getur breytt gangi leikja en ég er ekki viss um að hann geti leyst Fernando af ennþá sem komið er. Hann er ekki hár í loftinu og því gæti það reynst honum erfitt að spila einn í sókninni. Líklega þyrfti hann að spila með einhverjum.
Ryan Babel hefur sýnt gott hugarfar með því að koma aftur inn í liðið og spila vel. Hann hefur allt til að bera svo hann geti náð langt en hann þarf að sýna meiri stöðugleika. Það eru fimm og hugsanlega sex leikir eftir. Það væri svolítil áhætta fólgin í því að láta Ryan í sóknina. David Ngog er búinn að skila því sem hægt er að ætlast til af honum þegar hann hefur leyst Fernando af. Hann skoraði ekki á St Andrews en mér fannst hann vera mjög hreyfanlegur á móti Birmingham. Sóknarmenn eru þó alltaf dæmdir af mörkunum sem þeir skila og honum gengur ekki alltaf vel að klára færin sín. Sá er munurinn að Fernando er yfirvegaðri og skilar boltanum í markið.
David hefur fengið mikla reynslu núna og kannski þarf bara eitt mark til að koma honum í gang. Vonandi verður markið sem hann skoraði gegn West Ham í gærkvöldi til þess að mörkin fari að skila sér. Kannski á markið eftir að sannfæra Rafa um að hann sé rétti maðurinn í sóknina. En það eru mikilvægir leikir framundan og þess vegna myndi ég velja Dirk Kuyt í sóknina. Það er öruggast vegna þeirrar reynslu sem hann býr yfir.
Enn á Liverpool möguleika á því fjórða
Snemmborið mark var aðalmunurinn á sigurleiknum gegn West Ham og jafnteflinu á móti Fulham. Markið breytti öllu. Eftir að Yossi Benayoun opnaði markareikninginn var bara eitt lið á vellinum. West Ham var búið að ná þokkalegum úrslitum í síðustu leikjum en flestir töldu að Liverpool myndi vinna þennan leik.
Yossi átti stóran þátt í sigrinum. Fyrir utan að skora þá lék hann stórt hlutverk í sóknarleiknum. Hann er reyndur leikmaður og hann er mikilvægur í leikjum á móti léttleikandi liðum. Núna þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að lið á borð við Everton nái okkur. Þess í stað er hægt að stefna á fjórða sætið.
Erfið prófraun gegn Atletico Madrid í Evrópudeildinni
Ekki vanmeta Atletico Madrid. Eftir 2:1 tap fyrir Villarreal um helgina er liðið um miðja deild í La Liga en liðið er venjulega með í baráttu um sæti í Meistaradeildinni á þessum árstíma. Liðið hefur valdið vonbrigðum í deildinni en Atletico hefur verið hættulegt í bikarleikjum. Lið sem getur slegið Valencia út í tveimur leikjum hlýtur að geta eitthvað. Form þeirra minnir svolítið á hvernig við spiluðum í Meistaradeildinni 2005. Þá gekk okkur ekki vel í deildinni en liðið fór á kostum í Evrópukeppninni.
Í herbúðum Atletico telja menn örugglega að liðið geti unnið Evrópudeildina. En eftir að hafa spilað tvívegis við liðið í riðlakeppni Meistaradeildinni á síðustu leiktíð þá ættum við að þekkja vel til liðsins. Ekki spillir fyrir að hafa tvo fyrrum leikmenn liðsins, Fernando Torres og Maxi Rodriguez, í okkar röðum. Diego Forlan og Sergio Aguero geta skorað og Sergio er stórhættulegur. Diego vill líka örugglega leggja sig allan fram við að spila vel á Englandi þar sem hann lék áður. Líklega leggur hann sig enn meira fram gegn Liverpool því hann lék áður með Manchester United links.
Við verðum að byrja leikinn í Madríd eins og við hófum leikinn við Benfica í Lissabon. Daniel Agger skoraði snemma leiks og markið hans veitti liðinu sjálfstraust og nesti í síðari leikinn. Í þeim leik er ég viss um að við hefðum skorað annað mark ef Ryan Babel hefði ekki verið rekinn af leikvelli. Annað útimark gæti verið mjög mikilvægt.
Ian Rush