Forsíða

Pistlahorn - Það þarf mann til að leysa Fernando af



Þegar ég skrifa þennan pistil er ég ekki viss um hversu alvarleg hnjámeiðsli Fernando Torres eru. Líklega hefur verið mikill vilji til að láta hann spila gegn Fulham. Hann var alls ekki að spila eins vel og hann getur gegn Benfica í síðustu viku en mörkin hans tvö í þeim leik sýndu hversu hættulegur hann er. Hann var sparkaður niður hvað eftir annað í útileiknum gegn Benfica. Slík meðferð tekur alltaf sinn toll en menn vita hversu hættulegur hann er. 

Hver sem leysir hann af, þegar hann er frá, þarf að glíma við að vera líkt við hann því stuðningmennirnir búast alltaf við miklu af honum. Meira að segja þegar Fernando er ekki alveg heill þá er gjarnan freistast til að láta hann spila. Læknalið félagsins lagði auðvitað mat á það hvort hann gæti leikið eða ekki á sunnudaginn. Skiljanlega er verið að reyna að fara varlega með hann svo hann verði ekki úr leik það sem eftir er af keppnistímabilinu. Kannski taldi Rafa Benítez bara að liðið væri nógu gott til að vinna Fulham án þess að Fernando kæmi við sögu.

Við svona aðstæður þarf að hafa breiðan liðshóp. Það er ekki alltaf hægt að treysta á Fernando. Það er ómögulegt að vera í þeirri aðstöðu að liðið hætti að vinna um leið og hann getur ekki spilað. Þetta er of mikið álag á einn leikmann og þess vegna þarf Liverpool að fjárfesta með það að markmiði að stækka og styrkja hópinn með mönnum sem geta leyst lykilmenn af og haldið liðinu gangandi þegar þeir eru frá.

Nú verður erfitt að ná því fjórða

Jafnteflið við Fulham var mjög ergjandi. Það verður að vinna svona lið ef gerlegt á að vera að ná einu af fjórum efstu sætunum. Við sóttum nóg en ógnunin var ekki nógu mikil. Markvörður þeirra varði nokkrum sinnum vel en við komum Fulham ekki í nægjanleg vandræði. Við skulum ekki gleyma því að Roy Hodgson er mjög góður framkvæmdastjóri sem stillti liðinu sínu mjög skynsamlega upp. Hann hlýtur að koma til álita sem Framkvæmdastjóri ársins fyrir að það að koma liðinu sínu í undanúrslit Evrópudeildarinnar á þessu keppnistímabili.
 
En við hefðum átt að skora miðað við þau færi sem við fengum. Það tókst ekki og þess vegna fengum við aðeins eitt stig í stað þriggja. Vandinn byrjar fyrst þegar ekki tekst að skapa færi en við sköpuðum nógu mörg til að vinna leikinn. Þeir Javier Mascherano, Ryan Babel og Alberto Aquilani ógnuðu allir og Maxi Rodriguez var líka ágengur í vítateignum. Liðinu var stillt upp með sóknarleik í huga og það mátti sjá jákvæð teikn á lofti. En liðið þarf að læra að nýta marktækifæri sín þegar Fernando Torres getur ekki spilað.

Í þessu liggur munurinn á því að ná fjórða sætinu eða því sæti sem við komum til með að enda í. Það er enn stærðfræðilega mögulegt að ná fjórða sætinu en hér eftir verður það ekki hægt nema að þrjú lið misstigi sig. Tottenham og Manchester City standa best að vígi. En Aston Villa er líka inn í myndinni og geta farið upp fyrir okkur ef þeir vinna þá leiki sem þeir eiga til góða.

Ég var bjartsýnn á að við myndum ná fjórða sætinu með því að vinna Fulham og svo hina fjóra leikina sem eftir eru. Þetta verður þó alltaf erfiðara í hvert sinn sem við vinnum ekki leik. En eftir jafntefli við Birmingham lékum við mjög vel á móti Benfica á fimmtudagskvöldið. Eftir þann sigur voru allir bjartsýnir fyrir leikinn á móti Fulham. Staða okkar í deildinni er ekki komin til vegna þessara tveggja leikja sem enduðu með jafntefli. Töp á útivöllum fyrir Wigan, Portsmouth og svo fyrr á leiktíðinni gegn Fulham voru dýrkeypt og þess vegna er staðan sú sem hún er.

Það gæti verið gott að fá nýjan stjórnarformann

Það var áhugavert að heyra að Martin Broughton gæti orðið nýr stjórnarformaður Liverpool. Það hefur verið mikil óvissi í kringum stjórn Liverpool en kannski er nú komið að því að taka skref í rétta átt. Hugsanlega hætta árekstrar Tom Hicks og George Gillett ef óháður aðili tekur við og aðstoðar við að selja félagið.

Því hefur lengi verið haldið fram að þeir Tom og George hafi alltaf reynt að trufla hvorn annan um leið og hinn hefur viljað gera eitthvað. Slíkt gengur auðvitað ekki ef hagsmunir félagsins eiga að vera í fyrirrúmi. Það er vonandi að núna verði hægt að vinna vel og skipulega. Christian Purslow er að sinna frábæru starfi og við þurfum fólk eins og hann sem vilja vinna félaginu og áhangendum þess allt það besta. Ekkert gerist á einum degi en kannski finnst stuðningsmönnum núna að eitthvað sé að birta til. Málið snýst ekki um neina einstaklinga heldur það mikilvæagasta af öllu sem er Liverpool Football Club.

Ian Rush


Leikjahornið

Leikur Úrslit
LFC - Brighton 19.feb. 16:30
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
LFC - Arsenal 03.mar. 12:45
Leikur Úrslit
Man Utd. - LFC 2 - 1
LFC - Tottenham 0 - 0
Wolves - LFC 0 - 3

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin