Ég spái því að Fernando Torres mæti grimmur til leiks gegn Benfica á Anfield á fimmtudagskvöldið og láti gremju sína bitna á þeim. Það hefur mikið verið fjallað um þá ákvörðun Rafa Benítez að taka Fernando af velli þegar 25 mínútur voru eftir á St Andrew´s á sunnudaginn. Fernando var ekki ánægður með að vera tekinn út af og það var gott að sjá að hann leyndi gremju sinni ekki.
Framkvæmdastjórinn var í erfiðri aðstöðu. Fernando var þreytulegur og var búinn að missa boltann nokkrum sinnum. Hann var líka búinn að spila erfiðan leik gegn Benfica þremur dögum áður. En hann er óútreiknanlegur leikmaður því þó hann sé ekki að spila vel þá getur hann alltaf gert eitthvað ótrúlegt upp úr þurru og þegar maður skorar finnur maður ekki fyrir þreytu.
En þreyta eykur alltaf hættu á meiðslum og ef til vill hafði Rafa áhyggjur af því að hann yrði fyrir hnjaski og myndi kannski missa af því sem eftir er af keppnistímabilinu. Framkvæmdastjórinn veit hvað hann er að gera og hann verður að fá að njóta vafans.
David Ngog, sem kom inn á fyrir Fernando, fékk nokkur færi sem honum tókst ekki að skora út en hann var mjög hreyfanlegur og skapaði sér þessi færi sjálfur. Það eru gerðar miklar væntingar til þess sem leysir Fernando af hólmi og því miður þá er David ekki jafn öruggur með sig fyrir framan markið. Ef honum hefði tekist að skora úr einu af þessum færum hefði skiptingin þótt snilldarleg.
Ég er viss um að Fernando mun taka það rólega fram til fimmtudagskvöldsins. Kenny Dalglish hugsaði alltaf vel um mig á þessum árstíma. Ég æfði aldrei mjög mikið milli leika og allt var miðað að því að koma mér í gott stand fyrir næsta leik. Ég hugsa að það þurfi ekki að æsa Fernando mikið upp fyrir seinni leikinn við Benfica. Hann fékk að finna fyrir því í fyrri leiknum og það var greinilegt að báðir miðverðirnir áttu að láta hann finna fyrir því. Þeir voru líka báðir bókaðir.
Það var sparkað mörg hundruð sinnum í mig á ferli mínum. Þegar maður spilar í sókninni verður maður enn ákveðnari að skora þegar sparkað er í mann. Þess vegna vilja sóknarmenn aldrei koma af velli í svona leikjum. Maður vill spila allar 90 mínúturnar því ef maður fer af velli telja varnarmennirnir, sem hafa sparkað í mann hvað eftir annað, sig hafa haft betur. Ég vona að Fernando verði inn á allan leikinn á fimmtudaginn og láti Benfica finna fyrir því eftir þá meðferð sem hann fékk í fyrri leiknum. Ef liðið byrjar af krafti er ég viss um að við munum komast áfram í undanúrslit og ég held að hraðinn í ensku knattspyrunni skipti sköpun. En ef það á að byrja rólega og sjá til, eins og í Birmingham, þá bjóðum við hættunni heim.
Fyrri leikurinn þróaðist vel þangað til Ryan Babel var rekinn út af. Brottreksturinn var vendipunktur því fram að honum vorum við að spila vel og allt leit vel út. Ryan gerði mistök með því að lyfta hendi sinni en það hefði átt að sýna Luisao rauða spjaldið umsvifalaust eftir að hann negldi Fernando niður án þess að gera minnstu tilraun til að ná boltanum. Dómarinn var ekki hagstæður okkur en það var ekki sem verst að tapa 2:1. Það var frábær stemmning í Lissabon og stuðningsmenn Liverpool eiga eftir að leika lykilhlutverk í seinni leiknum. Allt stefnir í enn eitt magnað Evrópukvöld á Anfield.
Gremjulegt jafntefli við Birmingham
Jafnteflið við Birmingham á sunnudaginn var mjög gremjulegt en ég held að við náum fjórða sætinu með því að vinna síðustu fimm leikina. Man City, Spurs og Aston Villa eiga eftir að tapa stigum en við getum ekki leyft okkur að gera fleiri mistök. Ég held að stærstur hluti stuðningsmannanna myndi frekar vilja að við næðum fjórða sætinu frekar en að vinna Evrópudeildina því það sæti kemur okkur í Meistaradeildina á næsta keppnistímabili.
Það sem mér gramdist á sunnudaginn var hvernig við byrjuðum leikinn. Í síðustu leikjum höfum við bryjað af krafti en sú var ekki raunin á St Andrew´s. Fyrstu 40 mínúturnar voru eins og í æfingaleik og það var ekki fyrr en að Maxi Rodriguez átti þversláarskotið að líf færðist í leik okkar.
Roy Hodgson hefur staðið sig frábærlega
Fulham kemur í heimsókn á Anfield á sunnudaginn. Liðið hefur átt frábæra leiktíð undir stjórn Roy Hodgson. Hann er búinn að skila ótrúlegu starfi á Craven Cottage. Hann hefur frábært skipulag á hlutunum og það hefur skilað sér. Liðið hefur aldrei komist svona langt í Evrópukeppni og liðið á stórleik framundan á útivelli á móti Wolfsburg á fimmtudagskvöldið.
Liverpool á ekki auðvelt verk fyrir höndum en við verðum að vinna þennan leik. Fulham hefur ekki spilað vel á útivöllum og við verðum að ráðst af krafti á þá. Bæði Tottenham og Villa spila í F.A. bikarnum núna um helgina og við verðum að nota tækifærið og setja pressu á hin liðin í baráttunni um fjórða sætið.
Ian Rush