Liverpool tókst það á mánudaginn sem fæstum hefði dottið í hug að væri hætt. Þeir töpuðu í tvígang sama kvöldið. Nógu slæmt var að tapa gegn Wigan en tapið á DW leikvanginum olli því að Livrpool hefur nú taoað frumkvæðinu í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Héðan í frá verður gríðarlega erfitt að ná þessu sæti. Núna er vandinn sá að Manchester City, Tottenham Hotspur og Aston Villa eiga öll leiki til góða. Þessi lið geta nú þolað að tapa leikjum.
Það er erfitt að átta sig á því hvað gerðist í Wigan. Ég hélt í alvöru að Liverpool færi þangað með mikið sjálfstraust og kæmi sér svo í enn betri stöðu með því að vinna Lille og Portsmouth. Það var að miklu að keppa því þrjú stig hefðu komið okkur upp í fjórða sætið. Þess í stað dvínuðu möguleikarnir á Meistaradeildarsæti mikið.
En hvernig getur Rafa Benítez komið liðinu á réttan kjöl? Hann verður að gera allt sem hann mögulega getur til að rífa liðið upp. Ef leikmenn liðsins ætla að fara að vorkenna sér munu þeir aldrei ná fjórða sætinu. Ef lið mæta með hangandi haus með vorkunsemi í farteskinu liggur leiðin bara í eina átt. Ég held að það búi nóg í mönnum á Anfield til að koma okkur úr þessari stöðu. Það verður að koma því þannig fyrir að við sköpum hættu í stað þess að hugsa of mikið um að halda markinu hreinu. En ef liðið á að verða sókndjarfara þá verða leikmenn liðsisn að bretta upp ermarnar, leggja hart að sér og hafa trú á því að hægt sér að gera það sem til þarf.
Það þýðir ekkert að skammast í framkvæmdastjóranum eða liðinu núna. Ég hef alltaf sagt að tími uppgjörs eigi að vera þegar keppnistímabilinu lýkur. Það gerir bara illt verra að ætla sér að gera út um mál núna. Það verður nógu erfitt að ná fjórða sætinu og sundrung má ekki ná yfirhöndinni. Það er heldur ekki háttur Liverpool að láta allt hrynja. Það eru enn 27 stig í pottinum en ef leikmennirnir hafa ekki trú á verkefninu er ekki einu sinni víst að Liverpool nái einu af efstu sex sætunum.
Fernando getur ekki allt einn
Fernando Torres átti ekki gott kvöld á DW leikvanginum og það þýddi að Liverpool lék ekki vel. Það er ekki hægt að ætlast til þess að nokkur sóknarmaður skori úr öllum þeim færum sem hann fær. Sóknarmenn þurfa líka að fá úr meiru að moða.
Ég var heppinn þegar ég spilaði því oft fékk ég fimm færi í leik og náði kannski að skora eitt eða tvö mörk. En þegar ég var að spila með Wales velti fólk því stundum fyrir sér af hverju ég skoraði ekki jafn mikið. Ástæðan var sú að ég fékk miklu færri færi. Sóknarmenn sem skora úr helmingi af færum sínum eru alltaf meðal þeirra bestu. Fernando er einn af þeim er hann hefur ekki náð að sýna sitt besta um þessar mundir. Miðjumennirnir eru einfaldlega ekki að skapa nóg af færum og það væri allt í lagi ef þeir væru að gera það. En liðið á í miklum erfiðleikum með að skora eins og sást gegn Wigan.
Liverpool verða að vera ákveðnir gegn Lille
Liverpool getur sem betur fer drifið í því að koma sér á rétta braut eftir tapið gegn Wigan þegar liðið mætir Lille annað kvöld. Sumir telja kannski að það sé ekkert sérstaklega gott að þurfa að spila í þessari keppni en mér finnst þessi leikur koma á hárréttum tíma til að koma okkur aftur í gagn.
Þetta verður erfiður leikur því Lille sló Fenerbahce út í síðustu umferð. En ef Liverpool mætir til leiks á sama hátt og þegar ég sá liðið ryðja Manchester United, Tottenham og úr vegi þá á ég von á öðru en öruggum sigri. En ef liðið spilar eins og gegn Wigan þá er ekki von á góðu. Allir verða að leggja sig 100% fram.
Ian Rush