Forsíða

Pistlahorn - Liverpool tilbúnir í baráttuna



Liðið spilaði betri knattspyrnu á síðustu leiktíð en núna er liðið betra í að herja fram sigra. Það var enginn glæsibragður á sigrinum á Blackburn en sigurinn var gríðarlega mikilvægur. Það þurfti að berjast fyrir sigrinum en það þýðir ekkert annað en að berjast þegar leikið er gegn liðum eins og Blackburn. Það var vissulega gott að sjá leikmenn Liverpool bretta upp ermarnar og berjast fyrir sigri.

Bæði Tottenham og Manchester City unnu sína leika svo við urðum að vinna þennan leik til að vera með í baráttunni um fjórða sætið. Tveir helstu keppinautar okkar ætla ekki að gefast upp og til loka leiktíðar mun það skipta mestu að fara ekki á taugum. Það er talið líklegt að um 80 stig muni duga til að vinna titilinn í vor svo það má gera sér í hugarlund hvað mörg stig þurfi til að ná síðasta Meistaradeildarsætinu. Núna, þegar 10 leikir eru eftir, myndi ég segja að 68 til 70 gætu dugað til að ná því markmiði. Það þýðir að Liverpool þarf að vinna minnst sjö leiki fram að 9. maí.

Það er erfitt að segja til um hvernig leikirnir gegn Chelsea og Manchester United fara. En það þarf líklega til að vinna annan hvern leik ef vel á að fara. Líklega munu margir telja að þetta verði erfitt fyrir Liverpool því liðið hefur átt erfitt með að sýna stöðugleika á leiktíðinni. En sigurinn á Blackburn gefur von um að Liverpool sé að komast á skrið. Þeir í rauðu treyjunum spiluðu þá knattspyrnu sem eitthvað var varið í á Anfield og það var gott að sjá þá Steven Gerrard og Fernando Torres ná vel saman þannig að um munaði. Það var ekki nein tilviljun að Steven og Fernando skyldu skora. Eftir því sem þeir spila meira því betur mun Liverpool komast betur í gang. Jamie Carragher hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði, eftir leikinn, að það sé alltaf möguleiki á sigri ef bestu leikmenn liðsins eru leikfærir. 

Eins og staðan er núna þá verður Liverpool að herja fram úrslit því spannan verður mikil, eins og á sunnudaginn, í flestum þeim leikjum sem eftir eru. Í næstu viku verður spilað á mánudagskvöld. Það er svo sem ekki slæmt því þá fá landsliðsmennirnir aukalega nokkra daga til að hvíla sig áður en gengið verður til leiks gegn Wigan. Það þýðir að þeir verða í góðu standi ef hart þarf að berjast á nýjan leik.

Pepe Reina er hetja á Kop

Ef einhver var í vafa um hvers vegna Pepe Reina verður Leikmaður ársins hjá Liverpool þá fékkst sönnun á því á síðustu sekúndum leiksins síðdegis á sunnudaginn. Hann varði alveg ótrúlega frá Christopher Samba og markvarslan var enn betri þegar haft er í huga að æstir leikmenn Blackburn voru búnir að reyna að koma honum úr jafnvægi allan leikinn.

Auðvitað eru þeir Steven Gerrard og Fernando Torres mest í sviðsljósinu en þeir myndu sjálfir verða fyrstir til að viðurkenna hversu stórt hlutverk Jose hefur leikið. Hann verðskuldaði að halda hreinu um helgina því hann var frábær í leiknum og það var leiðinlegt að honum tókst ekki að verja vítið frá Keith Andrews. Það, að hann skyldi ekki ná að verja vítið, mun þó ekki skipta máli í vor ef Liverpool kemst í Meistaradeildina. Markvarsla hans frá Christopher gæti skipt sköpum í því máli.

Gott að fara til Lille
 
Það var fínt að sjá Liverpool komast tiltölulega auðveldlega í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar. Enn betra var að næsta verkefni er ekki sem verst. Eftir að hafa rutt Unirea Urziceni úr vegi þá verður ferðalagið til Lille þægilegt. Það hefði verið miklu erfiðara að fara til Istanbúl og þreyta hefði örugglega setið í mönnum eftir ferðalag þangað en nú þarf ekki að hafa áhyggjur af því.

Ég held að Liverpool muni slá Lille út og komast í átta liða úrslit. Franska deildin hefur verið a styrkjst en eftir að hafa misstigið okkur gegn Lyon fyrr á leiktíðinni þá hef ég trú á að við verðum of sterkir fyrir Lille í tveimur leikjum. Ef við náum að skora á útivelli og höldum vörninni góðri þá er ég viss um að þeir eiga eftir að eiga í vandræðum á Anfield. 

Wales á eftir að sakna Aaron Ramsey meira en Arsenal FC

Það var margt rætt eftir leiki helgarinnar en með var þó fjallað um Aaron Ramsey. Það var hræðilegt að sjá hann borinn af leikvelli og allir óska þess að hann nái sér sem fyrst. Arsenal getur komist af án hans en Wales á eftir að sakna hans mikið. Hann er gríðarlega hæfileikaríkur og á eftir að leika stórt hlutverk bæði með félagi sínu og landsliði í framtíðinni.

Ian Rush



LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
Borussia M - LFC 01.ágú. 12:30
LFC - Rabotnicki 05.ágú. 18:45
LFC - Arsenal 15.ágú. 15:00
Leikur Úrslit
Rabotnicki - LFC 0 - 2
K'slautern - LFC 1 - 0
Grasshopper - LFC 0 - 0

Vefkönnun

Hvernig heldur þú að Joe Cole eigi eftir að vegna hjá Liverpool?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan