Forsíða

Pistlahorn - Það þarf að herða sóknina



Hver hefði trúað því að svona líflaus leikur myndi koma Liverpool í metabækur? Síðdegis á sunnudaginn náðu þeir Rauðu og Manchester City aðeins einu skoti, hvort lið, á markrammann. Aldrei hefur eins lítil marksækni mælst í Úrvalsdeildarleik og hún sagði allt um þær 90 mínútur sem voru spilaðar á Eastlands leikvanginum. Það má svo sem reyna að líta jákvætt á hlutina og segja að það hafi verið aðeins betra fyrir Liverpool að ná stigi. City á erfiða dagskrá framundan og liðið þarf vinna eins marga leiki sem fyrst til að eiga möguleika á að komast í Meistaradeildina. 

Ég hef alltaf haldið því fram og haft sterka trú á því að Liverpool muni vinna kapphlaupið um fjórða sætið. Þróun mála um helgina breytti engu um þá skoðun mína. Það vantar greinilega eitthvað í leik Liverpool núna. Það vantar neista í leik liðsins sem gæti gert liðið hættulegra. Liðið er einfaldlega ekki að skapa sér nógu mörg marktækifæri og þangað til það breytist verður erfitt fyrir Liverpool að snúa andstæðinga sína niður.

Það var frábært að sjá þá Yossi Benayoun og Fernando Torres koma aftur til leiks og þegar þeir komast á skrið mun Liverpool komast á siglingu. Ég hugsa að þeir fái að spila eitthvað meira gegn Unirea Urziceni á fimmtudaginn og þá verða þeir tilbúnir í slaginn gegn Blackburn. Þegar þeir verða heilir verður ekki hægt að afsaka eitt né neitt ef liðið fer ekki að spila betur.

Það var athyglisvert að heyra það sem Yossi Benayoun eftir leikinn við City. Hann sagði að sóknarleikurinn þyrfti að batna mikið og það er alveg rétt hjá honum. Rafa Benítez fær mikla gagnrýni en ég held að hann geti ekki hafa gert mikið meira gegn City. Allir stuðningsmenn Liverpool hefðu gert þær skiptingar sem hann gerði. Hann sendi þá Yossi og Fernando inn á til að vinna leikinn og ná þremur stigum. Leikmenn eins og þeir Albert Riera, Maxi Rodriguez og Ryan Babel höfðu fengið sitt tækifæri en hvernig sem stóð á því tókst þeim ekki að setja mark sitt á leikinn. Sóknarleikurinn þarf að breytast sem allra fyrst ef Liverpool á að komast aftur á sigurbraut.

Alberto þarf að ná sér á strik

Fáir leikmenn Liverpool hafa verið eins mikið til umræðu á þessari leiktíð og Alberto Aquilani. Hann var keyptur í staðinn fyrir Xabi Alonso og þess vegna var óumfljýanlegt að hann yrði í sviðsljósinu. Hann hefur sýnt að hann kann ýmislegt fyrir sér. En hefur hann sýnt nóg? Því miður er svarið nei. 

Hann lék vel gegn Tottenham en fyrir utan þann leik þá hefur hann átt mjög erfitt uppdráttar. Hann þarf nauðsynlega á því að halda að sýna góðan leik því álagið eykst jafnt og þétt á honum. Alberto getur sent boltann vel en fram til þessa hefur hann ekki verið nógu djarfur og heldur sent boltann til baka eða hliðar frekar en fram á við. Fái hann sæti í byrjunarliðinu á fimmtudaginn verður hann að grípa tækifærið með báðum höndum.

Það verða engin vandræði fyrir Liverpool í Rúmeníu

Evrópukeppnin verður aftur á dagskrá á fimmtudagskvöldið og ég á ekki von á því að Liverpool lendi í neinum vandræðum með Unirea Urziceni. Fyrri leikurinn á Anfield, í síðustu viku, var ekki góður. Rúmenska liðið stillti 11 mönnum upp í vörn og léku skipulega. Við áttum erfitt með að brjóta liðið á bak aftur.

Leikurinn í Búkarest verður öðruvísi því þar þarf Unirea að sækja til að geta komist áfram. Það ætti að henta okkur vel því Liverpool er með leikmenn sem eru snjallir í hröðum sóknum þegar færi gefast. Allir vildu frekar vera í Meistaradeildinni en hér er verðug keppni og það stendur upp á leikmennina að gera eitthvað til að gleðja áhorfendur.

Stuðningsmennirnir geta hjálpað Chester Football Club

Það var gott að heyra að verið er að vinna í því að hjálpa Chester City. Mér hefur fundist mjög leiðinlegt að sjá hvernig mála hafa þróast á Deva leikvanginum. Það er sterk hefð á bak við Chester og allir myndu gjarnan að liðið komist aftur upp í deildarkeppnina.

Það hafa verið mikil vandræði hjá félaginu síðustu árin en fari allt vel gæti farið að þokast til betri vegar ef samningar nást við danska fjárfestingarfélagið sem vill kaupa félagið. Ef það tekst þá verða stuðningsmenn félagsins að láta til sín taka. Félög þurfa meiri innkomu en Chester hefur verið að fá á leikjum sínum og fólk þarf að fylkja sér að baki félaginu og mæta á leiki.

Ian Rush









LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
Borussia M - LFC 01.ágú. 12:30
LFC - Rabotnicki 05.ágú. 18:45
LFC - Arsenal 15.ágú. 15:00
Leikur Úrslit
Rabotnicki - LFC 0 - 2
K'slautern - LFC 1 - 0
Grasshopper - LFC 0 - 0

Vefkönnun

Hvernig heldur þú að Joe Cole eigi eftir að vegna hjá Liverpool?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan