Fyrir stuttu var rætt um að Liverpool gæti komist í fjórða sætið en núna hefur athyglin aftur beinst að fjórða sætinu. Áður en við spiluðum á The Emirates hafði liði komist í góða stöðu eftir sjö leiki í röð án taps. Eftir á að hyggja hefði Liverpool ekki mátt tapa þessum leik ef raunhæfur möguleiki hefði átt að vera á þriðja sætinu. Liðið lék alveg þokkalega gegn Arsenal og jafntefli hefði verið sanngjarnt. Ég ætla ekki að halda því fram að Liverpool hafi verið að spila sérstaklega góða knattspyrnu upp á síðkastið en í síðustu leikjum hef ég tekið eftir auknum baráttuanda í liðinu en hann var ekki að finna fyrr á keppnistímabilinu. Leikmenn liðsins virðast nú vita hvað stendur upp á þá.
Það var óheppilegt að tapa gegn Arsenal en Liverpool fær tækifæri til að snúa við blaðinu gegn Manchester City sem er með jafn mörg stig og þeir Rauðu en á tvo leiki til góða. Ef City vinnur á sunnudaginn verður liðið í ákjósanlegri stöðu til að ná fjórða sætinu. En ef Liverpool nær sigri verður pressan aftur á City. Menn segja oft að það sé betra að hafa stigin í húsi en að eiga leiki til góða.
Þetta verður gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Leikmenn Liverpool eru vanir svona aðstæðum en City á þeim ekki að venjast og það á eftir að koma ljós hvort þeir þola álagið. Það er mikil spenna hjá félaginu og það kom vel í ljós þegar Mark Hughes var látinn fara og Roberto Mancini var fenginn til að reyna að koma liðinu enn ofar. Liðið tapaði sjaldan undir stjórn Mark en gerði of oft jafntefli.
Framþróun City gat aldrei gengið eldsnöggt fyrir sig. Það virðist vera að Roberto sé að reyna að gera liðið sókndjarfara til að ná fleiri sigrum. Hann virðist vilja frekar vinna þrjá og tapa tveimur af hverjum fimm fremur en að gera fimm jafntefli. Stefnan er auðvitað að ná sigrum í höfn og þess vegna var Roberto fenginn til að koma og reyna að breyta jafnteflum í sigra.
Liðið hefur tapað nokkrum leikjum eftir að Roberto tók við en City hefur náð góðum árangri í heimaleikjum sínum. Liðið hefur unnið fjóra af fimm leikjum eftir að nýi stjórinn tók við. Liðið er sókndjarft á heimavelli og þess vegna eiga góðir andstæðingar að geta fært sér veikleika í vörn þeirra í nyt. Leikmenn Liverpool eru mjög snjallir í að beita skyndisóknum og ég horfi til þess þegar ég spái okkur hagstæðum úrslitum á sunnudaginn.
Úrvalsdeildin skiptir meiru en Evrópudeildin
Liverpool hefur keppni í Evrópudeildinni núna í vikunni og við verðum að trúa því að við séum í henni til að vinna. Við vildum reyndar ekki vera í henni þegar hér er komið við sögu á leiktíðinni en við verðum að njóta hennar úr því sem komið er. Svo er ég viss um að stuðningsmennirnir hefðu rosalega gaman af að komast í úrslitaleikinn í Hamborg. Aðalkeppnin er Meistaradeildin en það eru samt sem áður nokkur góð lið í Evrópudeildinni sem fólk vill koma og horfa á.
Þrátt fyrir þetta verður Úrvalsdeildin og fjórða sætið að vera í forgangi. Það er næsta víst að nokkrir leikmenn Liverpool spila ekki á fimmtudaginn gegn Unirea Urziceni en þeir hinir sömu munu spila gegn Manchester City á sunnudaginn. Liverpool verður að komast í Meistaradeildina og Evrópudeildin mun því ekki hafa forgang.
Minni spámenn verða að nota tækifærið
Það er gott að heyra að þeir Fernando Torres og Glen Johnson eru á batavegi. En þangað til verða aðrir í liðshópnum að reyna að halda Liverpool í baráttunni um fjórða sætið. Það dugar ekki að tapa leikjum núna og fara svo að vinna
þegar allir eru komnir aftur í liði. Þá gæti verið að allt verði of seint.
Þeir Fernando Torres, Glen Johnson og Steven Gerrard hafa verið frá af og til á leiktíðinni. En þegar þeir eru frá verkum verða aðrir í liðshópnum að sjá svo um að Liverpool verði enn með í baráttunni þegar hinir koma aftur til leiks.
Áhyggjur af Jamie fyrir leikinn við Manchester City
Það var áfall að missa Jamie Carragher af velli gegn Arsenal í upphafi síðari hálfleiks. Hann stjórnar vörn Lnverpool vel og það var skarð fyrir skildi þegar hann var farinn af velli. Þegar markið kom sást að Abou Diaby náði að lauma sér á svæðið milli miðvarða og hægri bakvarðar. Það er auðvelt að vera vitur eftir á en skipulag varnarinnar hefði kannski verið betra ef Carra hefði ennþá verið til taks. Abou hefði þá kannski ekki fengið svona mikið svæði.
Svo er sagt að helmingslíkur séu á því að Carra verði leikfær fyrir leikinn á móti City. Við vonum að hann verði orðinn heill heilsu því það þarf alla bestu menn liðsins í stórleikina. Það yrði annað áfall fyrir Liverpool ef hann getur ekki leikið gegn City.
Ian Rush