Stórar prófraunir koma nú hverjar á fætur annarri. Þessi próf virðast virka hvetjandi á Liverpool en gildir það sama um Arsenal? Það verður að halda sér á jörðinni eftir hinn örugga sigur í Merseyside derby leiknum. Við höfum nú leikið sjö leiki án taps og nú er þriðja sætið, en ekki endilega það fjórða, í sigtinu. Sú barátta mun þó ráðast mikið til af því hvernig tekst til á Emirates leikvanginum á morgun. Arsenal verður fyrirfram að teljast líklegra til sigurs þótt liðið hafi tapað fyrir Manchester United og Chelsea í síðustu leikjum. Liðið er mjög sterkt og líklega spilar ekkert lið betri knattspynu í Úrvalsdeildinni. Liðið hefur þó þann veikleika að vilja skora hið fullkomna mark og það á erfitt með að vinna harðsótta sigra. Þetta hefur verið liðinu dýrkeypt.
Á hinn bóginn hefur Liverpool sýnt að liðið getur sett undir sig hausinn og herjað fram sigra þegar á móti blæs. Leikur liðsins á móti Everton einkenndist af baráttu og ákveðni. Fólk sagði að leikurinn hefði verið hefðbundinn grannaslagur þar sem boðið var upp á grimmd og illsku. Mér fannst leikurinn frábær skemmtun og þótt svo að Everton hafi byrjað vel þá tel ég að Liverpool hafi spilað þannig að Everton sýndist ekki vera með neitt sérstakt lið.
Það er ekki annað hægt en að hafa með sér mikið sjálfstraust úr svona leikjum. Ef satt skal segja þá veit ég ekki hvað er hægt að biðja um meira. Marga grunar nú að Liverpool sé að komast í gang á réttum tíma. Það minnsta er að stefna á fjórða sætið núna. Liðið virðist vera vel stemmt og það var líka mjög mikilvægt að úrslitin um síðustu helgi voru okkur í hag.
Ég sagði fyrir nokkrum vikum að Tottenham, Manchester City og Aston Villa gætu séð eftir því að hafa ekki fært slakt gengi okkar sér betur í nyt. Liverpool er núna að ná góðum úrslitum og það verður ekki auðvelt að ráða við liðið. Núna má ekki slaka á og láta góða vinnu fara til spillis. Rafa Benítez mun gera allt sem hann getur þannig að hann geti vaknað
jafn ánægður á fimmtudagsmorguninn og hann gerði á sunnudaginn. Fari svo þá er alveg möguleiki á því að Liverpool geti náð þriðja sæti. Hver hefði talið það möguleika fyrir einum mánuði?
Dirk Kuyt nýtur þess að vera í aðalhlutverki
Dirk Kut má vera mjög ánægður með að hafa skroað 50 mörk fyrir Liverpool en hann getur verið enn ánægðari með hvernig hann hefur verið að spila. Það má alltaf reiða sig á staðfestu Dirk. Hann er alltaf jafn ákveðinn og þetta koma vel í ljós þegar hann var ekki að spila vel fyrr á árinu. En markið hans gegn Everton er ávöxtur þess hversu hart hann leggur að sér. Öll lið, sem vilja ná árangri, þurfa að hafa svona menn innan sinna raða.
Þegar í ljós kom að Fernando Torres yrði lengi frá var mikil ábyrgð lögð á hann. Dirk hefur staðið undir þessari ábyrgð með því að skora mörk. Annað mark frá honum á morgun myndi koma sér virkilega vel.
Frábær dráttur fyrir unga Veilsverja
England má vara sig! Það getur verið að drátturinn fyrir forkeppni Evrópukeppni landsliða 2012 hafi verið góður fyrir liðið hans Fabio Capello en ég get fullyrt að þeir eiga eftir að þurfa að hafa fyrir hlutunum. Wales hefur átt erfitt uppdráttar síðustu árin og ekki komist í alvöru baráttu um að koma í stórkeppni frá því í Evrópukeppni landsliða 2004. En hið unga landslið hefur verið að standa sig mjög vel og við teljum að liðið lofi góðu.
Ef það ætti að keppa núna myndu auðvitað allir telja England eiga sigur vísan. Það álit á svo sem ekki eftir að breytast mikið fyrir leikina sem verða leiknir á næstu leiktíð. England fer núna að búa sig undir úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar og margir telja að liðið geti farið langt með að vinna þá keppni. Við fárum aukalegan tíma til að undirbúa okkur fyrir þessa leiki og sá tími á eftir að koma okkur vel. Ég vona að einhver geti gert það sama og ég gerði á sínum tíma. Það er að skora á Wembley. Markið mitt kom í Bretlandskeppninni og við töpuðum 2:1 en Mark Hughes skoraði sigurmark, gegn Englandi, skömmu seinna á The Racecourse Ground. Markmiðið er að einhver endurtaki þann leik og komi Wales til Póllands.
Ian Rush