Forsíða

Pistlahorn - Rafa mun ekki fara til Juventus



Það hafa verið miklar vangaveltur síðustu vikuna um að Rafa Benítez muni fara frá Liverpool og taka við Juventus en ég hef enga trú á því. Ef satt skal segja þá væri ekkert vit í því. Mér þykir mjög vænt um Juventus og mér finnst það besta félag á Ítalíu. En ef Rafa færi þangað þá væri hann ekki að fara til betra eða ríkara félags. Staðreyndin er sú að Juventus er enn verr statt fjárhahgslega en Liverpool. Liðið er bara í fimmta sæti í Seríu A og er ekki í baráttu um neina titla. Ég myndi vera vonsvikinn ef hann færi þangað en ég á alls ekki von á því að það muni gerast. 

Það er greinilegt að Juve vill fá Rafael og þeir hafa notað sér fjölmiðla til að kanna viðbrögð. Þetta mál hefur verið mikið í fjölmiðlum en Rafael segist alls ekki hafa haft neitt samband við félagið og það staðfestir að hann vill vera hjá Liverpool. Hann hefur margendurtekið að hann vill vera áfram hjá Liverpool og hann er maður orða sinna. Þessi leiktíð hefur auðvitað verið erfið en hann gerði fimm ára samning við félagið á síðasta ári og hann á verk að vinna. Stuðningsmenn félagsins hafa sýnt honum hollustu og hann hefur alltaf sagt að hann vilji vera hér áfram svo lengi sem stuðningsmennirnir vilja hafa hann.

Ég held að orð Rafael Benítez, um að hann hafi verið stoltur yfir því að vera orðaður við Juventus, hafi verið oftúlkuð. Það er auðvitað gaman að vera orðaður við stórt félag og það var ekkert meira sem Rafa gaf í skyn. Hann sagðist líka ekkert vera á förum og málið ætti því að vera útrætt. Hann hefur gefið loforð sitt og við verðum að trúa honum. En svona umtal getur komið leikmönnum úr jafnvægi. Það er ekki gott að heyra sögur um að framkvæmdastjóri sem keypti mann gæti verið á förum. Leikmenn verða að sýna með framgöngu sinni að þeir trúi á stjórann. Þeir verða að vera einbeittir og gefa allt í að við náum fjórða sætinu í deildinni og vinnum Evrópudeildinni á þessari leiktíð.
 
Við vitum öll að Liverpool þarf nýja fjárfesta til að geta verið almennilega samkeppnishæfir. Ég ferðast vítt um heiminn og Úrvalsdeildin er sú deild sem allir fylgjast með. Það er sjaldan talað um Seríu A. Það er örugglega mikill áhugi á Liverpool og vonandi koma einhverjir með fjármagn inn í félagið. Með því yrði framtíð Rafael Benítez á Anfield tryggð til lengi tíma.
 
Ég hefði viljað kaupa sóknarmann

Það olli mér vonbrigðum að Liverpool skyldi ekki kaupa annan sóknarmann áður en lokað var fyrir félagaskipti. Stuðningsmennirnir vilja vita, með réttu, hvað varð um þær sex milljónir punda sem við fengum fyrir söluna á þeim Andiry Voronin og Andrea Dossena. Kannski telur framkvæmdastjórinn að liðshópur hans sé nógu sterkur og hugsanlega fékk hans enga peninga til afnota. Það er allt á huldu um þetta.

Þar sem Fernando er meiddur þá er mikið álag á hinum unga David Ngog. Hann er enn að læra og honum ferfram en Liverpool má engan tíma missa því liðið í þeirri stöðu að það má ekki missa nein stig. David misnotaði frábært marktækifæri gegn Bolton en jafnvel bestu sóknarmenn misnota færi. Hann verður að gleyma þessu atviki og skora næst þegar færi gefst. Mark í grannaslagnum myndi bæta fyrir færið sem fór forgörðum.

Everton verður hættulegt

Everton verður miklu erfiðari mótherji á laugardaginn en liðið var á Goodison í nóvember. Þeir Bláu hafa fengið menn til baka úr meiðslum og það er mikið sjálfstraust í liðinu eftir níu leiki í röð án taps. Tim Cahill hefur verið að sækja í sig veðrið og Landon Donovan hefur styrkt liðið.

En það er einn leikmaður sem við þurfum virkilega að hafa gætur á og það er Steven Pienaar. Hann var einn af fáum leikmönnum þeirra sem stóð sig vel á Goodison og hann er mjög góður leikmaður. Ef við ætlum að ná fjórða sætinu þá verðum við að vinna þennan leik. Pressan er því öll á okkur. Það er miklu meira í húfi en stoltið og sigur í grannaslagnum á eftir að gefa okkur mikið nú þegar mörg verkefni eru framundan og baráttan magnast.

Sotirios Kyrgiakos var aftur besti maður Liverpool

Sotirios Kyrgiakos var enn besti maður Liverpool í sigurleiknum gegn Bolton. Kevin Davies er mjög erfiður mótherji en Grikkinn lét ekki setja sig út af laginu og lagði mjög hart að sér. Hann náði að komast í liðið og er búinn að standa sig frábærlega. Núna er Daniel Agger orðinn leikfær og Rafa þarf að taka stóra ákvörðun fyrir derby leikinn. Sotiros er sterkur varnarmaður en Daniel fer vel með boltann og kemur oft við sögu í sóknarleiknum.

Um leið og fyrsta markið kom gegn Bolton var aldrei spurning um úrslitin í leiknum. Þegar seinna markið leit dagsins ljós sá maður að sjálfstraustið í liðinu jókst mikið og við verðum að taka það með okkur í leikinn gegn Everton.

Ian Rush

LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
LFC - Portsmouth 15.mar. 20:00
LFC - Lille 18.mar. 20:05
Man Utd. - LFC 21.mar. 13:30

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í febrúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA