Forsíða

Pistlahorn - Áfram að vinna í málinu



Liverpool hefur aftur komið sér í gang með því að leggja hart að sér. En það má hvergi slá af ef vel á að fara.
 
Það er á hreinu að Rauðliðar eiga eftir að spila betur fram til 9. maí en þeir gerðu gegn Stoke City og Tottenham Hotspur en barátta, staðfesta og rétt viðhorf í þeim leikjum var eins og best gerist. Þessir þættir hafa vakið trú og sjálfstraust  í liðinu. 

Það var magnað að ná að vinna lið sem við erum að berjast við um Meistaradeildarsæti. Sigurinn var á margan hátt sannfærandi en leikurinn við Wolverhampton Wanderers í kvöld verður jafnvel enn erfiðari. Wolves vill reyna að hefna fyrir tapið sem þeir máttu þola á Anfield á öðrum degi jóla. Sá leikur snerist reyndar ekki fyrr en Stephen Ward var rekinn af velli. Á meðan 11 voru gegn 11 leit út fyrir að Liverpool mætti sætta sig við jafntefli. Wolves fær góðan stuðning á Molineux og liðið er að berjast fyrir lífi sínu. Liðið hans Mick McCarthy mun reyna allt til að bæta stöðu sína.

Það er algerlega nauðsynlegt að menn haldi linnulaust áfram að leggja hart að sér, hlaupa og berjast um boltann. Allir sáu þetta og þetta kveikti í áhorfendum á Anfield. En ef það verður gefið eftir á eftir að þyngjast fyrir. Menn hafa auðvitað áhyggjur af því að liðið komi sér ekki í gang. Það náðist ekki að komast á flug eftir góða sigra fyrr á leiktíðinni eins og gegn Manchester United og Everton. Núna verður liðið að fylgja góðum úrslitum eftir. 

Ef það hefst að ná sex stigum úr leikjum vikunnar, og það ætti að vera vel hægt, er ég viss um að Liverpool kemur sér í þá stöðu að teljast líklegast til að komast í Meistaradeildina. Við komum inn á það í síðustu viku að það er ekki víst að Manchester City and Aston Villa muni þola álagið. Tottenham fór út af laginu þegar við létum þá finna fyrir því. Fer eins fyrir hinum? Liverpool má ekki gefa neitt eftir fyrst liðið hefur komið sér í svona góða stöðu. Takist að vinna Wolves og Bolton núna í vikunni verður liðið vel í stakk búið að fást við Everton og Arsenal í leikjunum þar á eftir. Þá gætu keppinautar okkar átt erfitt með að ná okkur.

Sotirios Kyrgiakos stígur út úr skugga Sami

Brottför Xabi Alonso frá Anfield á síðustu leiktíð vakti kannski mesta athygli en það skipti líka miklu að Sami Hyypia skyldi fara til Bayer Leverkusen. Það gæti þó verið að loksins hafi Sotirios Kyrgiakos sett sig í stellingar til að fylla skarð stóra Finnans.

Það hvarflar ekki að mér að bera þessa tvo leikmenn saman því Sami telst réttilega í hópi goðsagna Liverpool. En Sotirios hefur sýnt það í síðustu tveimur leikjum að hann hefur svipaða kosti og Sami þannig að hann er rétti maðurinn til að sinna því hlutverki sem Sami hefði leikið á þessu ári.

Það gerast ekki erfiðari prófraunir í loftbardögum en að spila gegn Stoke og berjast við Peter Crouch en Sotirios stóðst þessi próf með sæmd. Menn hafa verið efins um getu hans en hann er núna að ná tökum á því að spila í Úrvalsdeildinni og hann getur vel lagt sitt af mörkum það sem eftir er af leiktíðinni. 

Það þarf að kaupa einn í viðbót

Það er orðið lítið eftir af þessu félagsskiptatímabili og líklega verður gengið frá nokkrum vistaskiptum næstu sex dagana. Það á eftir að sjá hvort Liverpool gerir eitthvað í kaupum en ég myndi vilja að Rafa Benítez fengi einn sóknarmann og jafnvel þótt sá maður væri bara lánsmaður. 

Ef hann nær því ekki af einhverjum ástæðum þá mun mikið álag vera á þeim leikmönnum sem nú eru fyrir á Anfield og þeir þurfa augljóslega að leggja enn harðar að sér. Það var gaman að sjá David Ngog koma inn á gegn Spurs og láta að sér kveða. Hann gæti minnkað álagið á öðrum leikmönnum. 

Ian Rush



LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
Borussia M - LFC 01.ágú. 12:30
LFC - Rabotnicki 05.ágú. 18:45
LFC - Arsenal 15.ágú. 15:00
Leikur Úrslit
Rabotnicki - LFC 0 - 2
K'slautern - LFC 1 - 0
Grasshopper - LFC 0 - 0

Vefkönnun

Hvernig heldur þú að Joe Cole eigi eftir að vegna hjá Liverpool?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan