Forsíða

Pistlahorn - Liverpool getur snúið á keppinautana



Aftur töpuðust tvö stig. Aftur fékk liðið síðbúið mark á sig. Enn koma slæmar fyrirsagnir. Liverpool hlýtur að vera úr leik í baráttunni í Meistaradeildinni. Það undarlega er að í síðustu umferð Úrvalsdeildarinnar lagaðist staða Liverpool aðeins í þessari baráttu vegna þess að keppinautarnir töpuðu allir stigum. 

Chelsea, Arsenal og Manchester United hafa notfært sér misjafnt gengi þeirra Rauðu á leiktíðinni en það sama verður ekki sagt um Manchester City, Aston Villa og Tottenham Hotspur. Ég er viss um að leikmenn Liverpool hafa átt von á því versta þegar þeir yfirgáfu Britannia leikvanginn síðdgis á laugardaginn eftir að hafa barist vel en ekki náð sigri. Keppinautar þeirra áttu nefnilega ekki svo erfiða leiki. Allir hafa örugglega átt von á því að Tottenham myndi eiga vísan sigur gegn Hull. Það sama má segja um Villa gegn West Ham United og trúlega hafa margir átt von á því að City gæti náð hagstæðum sigri gegn Everton því þeir hafa verið að leika vel að undanförnu. Þrátt fyrir allt náði ekkert þessara liða að vinna og það sýnir að þessi lið verða ekkert of örugg með sig það sem eftir lifir leiktíðar og líklega eiga þessi lið eftir að misstíga sig oft. Fari svo fær Liverpool tækifæri og ég er enn alveg sannfærður um að þeir Rauðu geta komist fram úr öllum þessum liðum áður en öllu lýkur 9. maí.

Það skal ekki úr því dregið að þessi leiktíð hefur langt frá því verið ásættanleg. Það má þó sjá merki þess núna að hlutirnir séu að færast í betra horf. Liðið sýndi til dæmis mikla baráttu og staðfestu í Stoke. Þetta var til fyrirmyndar og það var ekkert hægt að kvarta yfir því hvernig leikmennirnir stóðu sig. Það má líka benda á að það er ekki svo slæmt að fara heim með stig frá Britannia því það er einn erfiðasti völlurinn í Úrvalsdeildinni. Mörg lið hafa og eiga eftir að fara tómhent þaðan.

Það er mikilvægt að setja hlutina í samhengi og jafnteflið verður enn betra ef okkur tekst að vinna Tottenham. Þeir munu koma hingað til að reyna að snúa á okkur. Við getum ekki leyft okkur að tapa þessum leik og ég held að það muni ekki gerast. Liverpool er jú komið aftur í baráttuna. 

Það væri snjallt að fá Kenwyne Jones 

Kenwyne Jones er mjög góður leikmaður og því kemur mér það ekki á óvart að hann sé ofarlega á óskalista Liverpool. Sumir eru kannski undrandi á því að Rafa Benítez hafi áhuga á þessum sóknarmanni frá Trinidad & Tobago en það væri snjallt að næla í hann. Rafa þarf að bjarga málum og það snöggt því Fernando Torres er meiddur. Hann þarf einhvern sem hefur reynslu af Úrvalsdeildinni og það er mikilvægt að sá maður geti látið finna fyrir sér. Kewyne uppfyllir allt sem til þarf. Það er lítið fjármagn fyrir hendi og þess vegna væri snjallt að fá hann sem lánsmann til loka leiktíðar. David Ngog er enn ekki alveg tilbúinn að spila í Úrvalsdeildinni og Dirk Kuyt þarf að spila aðrar stöður. Þess vegna væri gott að fá Kenwyne í hópinn.

Liverpool FC verður að selja Ryan Babel
 
Enn og aftur hefur Ryan Babel átt slæma viku og ég get bara ekki séð hvernig hann getur núna snúið ferli sínum hjá Liverpool til betri vegar. Hann hefur ekki gert sjálfum sér neinn greiða með því að lenda í útistöðum við Rafa Benítez. Það er einfaldlega ekki hægt að brjóta trúnað við þá í búningsherberginu með því að láta alla veröldina vita 24 klukkustundum fyrir leik að maður sé ekki í liðshópnum.

Þegar leikmaður hefur fallið í þá gryfju að kvarta hjá félaginu sem hann er samningsbundinn þá er mjög erfitt að snúa þeirri stöðu við. Í svona tilfellum skipta hæfileikar leikmannsins engu. Ryan er góður í knattspyrnu en hann virðist ekki njóta sín hjá Liverpool og líklega væri best fyrir alla að hann yfirgefi félagið.

Jamie sýndi hversu mikið í hann er spunnið

Það hefur verið mikið rætt um hin miklu vonbrigði sem fylgdu brottfallinu úr F.A. bikarnum en það þýðir ekkert að velta sér upp úr því. Þetta var versti leikur Liverpool á leiktíðinni. Liðið fékk þó nógu mörg færi til að vinna þessu rimmu og það er mjög ergilegt að komast ekki til Wembley. Það má þó ekki gleyma því að Reading lék mjög vel í þessum tveimur leikjum og þeir verðskulda að komast í fjórðu umferð þar sem liðið mætir Burnley núna um helgina.
 
Þegar maður spilar með Liverpool er mjög mikilvægt að maður geti bæði fagnað sigri og tekið tapi. Það var því mjög gott að sjá Jamie Carragher sýna góða íþróttamennsku og hrósa Reading. Tapið hefur sært hann mikið og því segir það sína sögu um þennan mann að hann skyldi koma fram og tala eins og hann gerði.

Ian Rush





LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
Borussia M - LFC 01.ágú. 12:30
LFC - Rabotnicki 05.ágú. 18:45
LFC - Arsenal 15.ágú. 15:00
Leikur Úrslit
Rabotnicki - LFC 0 - 2
K'slautern - LFC 1 - 0
Grasshopper - LFC 0 - 0

Vefkönnun

Hvernig heldur þú að Joe Cole eigi eftir að vegna hjá Liverpool?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan