Forsíða

Pistlahorn - Verðum að klekkja á keppinautunum



Eftir að hafa klekkt á einum af keppinautum okkar um Meistaradeildarsæti á þriðjudagskvöldið þá dregur að því að endurtaka þurfi slíkt. Það mátti alveg sjá af viðbrögðum Martin O´Neill við síðbúnu sigurmarki Fernando Torres á Villa Park að lið hans hafði fengið hressilegt kjaftshögg. Þá má velta því fyrir sér hvort liðið nái sér eftir höggið. Hann vissi að Villa átti prýðilega möguleika á að setja okkur út úr keppninni um Meistaradeildina. Bilið milli liðanna hefði getað orðið 11 stig. En núna gæti Liverpool komist fram úr.

Vissulega er mikið eftir af keppnistímabilinu en atvik eins og þetta geta reynst afdrifarík. Þess vegna má búast við að Martin setji allt á fullt í Deildarbikarnum því þar á liðið góða möguleika á sigri. Ef svo fer þá erum það við, Manchester City og Tottenham Hotspur, sem kemur í heimsókn á Anfield á sunnudaginn, þau lið sem berjast um fjórða sætið. Tottenham hefur átt frábæra leiktíð. Liðið hefur oft spilað mjög vel en hefur liðið þann stöðugleika sem þarf í langhlaupið? Þeir töpuðu til dæmis á White Hart Lane fyrir Wolves. 

Liverpool hefur staðið í svona baráttu áður og eru reynslunni ríkari. En Rafa Benítez og menn hans vita að nú er kominn tími til að láta almennilega að sér kveða. Það var góð byrjun að vinna Villa en nú þarf að fylgja þeim sigri eftir með því að vinna Tottenham þegar þeir koma í heimsókn. Sigur myndi koma Liverpool í góða stöðu. Sigur gæfi liðinu líka mikið sjálfstraust. 

Núna fer í hönd, án nokkurs vafa, erfiðasta leikjatörn Liverpool það sem af er leiktíðar. Á næsta mánuði mætir Liverpool Everton, Arsenal og City. Svo bætist við snúin rimma í Evrópudeildinni. Eins gætu komið leikir í F.A. bikarnum. Það þýðir ekkert að fela þá staðreynd að við höfum ekki náð upp neinum stöðugleika á þessu keppnistímabili en sigurinn á Villa Park hefur veitt okkur viðspyrnu í deildinni nú þegar seinni hálfleikur keppnistímabilsins fer í hönd. Þeir Rauðu hafa sýnt á köflum að lið þeirra er hæfileikaríkt og þegar það hrekkur í gang munu málin fara í rétt horf.

Maxi Rodriguez yrði góður lánsmaður

Talið er að Rafa Benítez muni fá sinn fyrsta leikmann á árinu með því að ná Maxi Rodriguez til Anfield frá Atletico Madrid. Verði raunin sú er ég viss um að hann mun reynast mikill styrkur. Ég hef oft horft á Maxi og það er ekki neinn vafi á því að hann er mjög góður.

Hann er einfaldlega leikmaður sem sárlega þarf í liðið. Hann er fljótur, beinskeyttur, leikinn og getur gefið góðar fyrirgjafir af köntunum. Agrentínumaðurinn myndi kveikja í áhorfendum og ekki nóg með það. Hann myndi líka gefa þeim leikmönnum, sem eru núna á Anfield, spark í rassinn. Það er hverju liði nauðsynlegt að hafa samkeppni um stöður. Þess vegna vill Arsene Wenger, þó Arsenal gangi vel núna, styrkja liðið núna í mánuðinum. Þegar ég var hjá Liverpool, undir stjórn Bob Paisley, Joe Fagan og Kenny Dalglish, þá reyndu þeir alltaf að styrkja liðið á sumrin þó við værum nýbúnir að vinna titilinn. Þetta var bara alltaf gert.

Það myndi veita öllum hvatningu ef Maxi væri kominn fyrir leikinn við Tottenham á sunnudaginn. Næðist að landa honum þá gæti Rafa farið að einbeita sér að því að ná sóknarmanni. Núna um helgina sá ég enn einu sinni fjallað um hugsanlega endurkomu Emile Heskey en væri snjallt að fá hann þegar til lengri tíma er litið? Emile er frábær leikmaður en hjá Liverpool þurfa menn að spila vel í fimm leikjum af hverjum sex. Hann myndi leysa vanda til skemmri tíma litið en ég held að Rafa sé að horfa til lengri tíma.

Jafnteflið við Reading er enginn heimsendir

Liverpool lék ekki vel í Reading en það má stundum þakka fyrir lítið. Benda má á að Manchester United mátti þola fall úr bikarkeppninni fyrir neðri deildar liði. Aðalatriðið er að við eigum enn möguleika á að komast áfram. Reading á hrós skilið. Liðið gerði okkur erfitt fyrir og verðskuldaði að skora. Mestu vonbrigði mín voru að við skyldum ekki fylgja góðum leikkafla, í lok fyrri hálfleiks, eftir í síðari hálfleik. Ég vona að við lendum ekki í neinum stórvandræðum í aukaleiknum. Drátturinn í fjórðu umferð var ekki sem verstur. Við þurfum bara að finna stöðugleika. 

Ian Rush
 

LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
Lille - LFC 11.mar. 18:00
LFC - Portsmouth 15.mar. 20:00
LFC - Lille 18.mar. 20:05

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í febrúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA