Titlar:
8 Deildarmeistaratitlar 76-77-79-80-82-83-84-86
4 Deildarbikarar (Milk Cup) 81-82-83-84
4 Evrópumeistaratitlar 77-78-81-84
1 Evrópukeppni félagsliða 76
Fæddur: 20. feb. 1951
Fyrsti leikur 16. nóv. 1974 - hættur: 1985
Fjöldi leikja: 636
50 landsleikir fyrir Englendinga - fyrirliði.

"Ég var álitinn nokkuð efnilegur þegar ég braust inn í lið Northampton 17 ára gamall. En ég var þar enn sex árum síðar og mér fannst eins og stóra tækifærið myndi aldrei koma. Einn góðan veðurdag kallaði framkvæmdastjórinn mig inn á skrifstofuna sína og sagði mér að þeir hefðu tekið tilboði Liverpool. Ég trúði því ekki að allt í einu hefði ég tækifæri á að ganga til liðs við eitt af bestu liðunum í Englandi og umgangast og læra af þeim bestu." Neal var seldur fyrir 65.000 pund sem var hæsta upphæð sem Northampton hafði fengið fyrir leikmann. Bob Paisley var framkvæmdastjóri Liverpool á þessum tíma og samskipti hans við leikmenn voru nokkuð sérstök. "Daginn áður en ég lék minn fyrsta leik fyrir aðallið Liverpool hafði Paisley talið mér trú um að ég myndi leika með varaliðinu þá helgi. Á laugardagsmorgni hringdi Tom Saunders, sem hafði umsjón með unglingastarfseminni, í mig og sagði að stjórinn vildi að ég yrði til taks vegna mikilla meiðsla í aðalliðshópnum. Þegar ég labbaði inn í búningsherbergið, fleygði Paisley takkaskónum mínum til mín og sagði mér að ég ætti að byrja inná hjá aðalliðinu. Hann vildi ekki segja mér það fyrr en á leikdegi svo að ég myndi sofa vært nóttina fyrir leik."
Liverpool var á þessum tíma ekki einungis sterkasta liðið í Englandi heldur í Evrópu. "Við vorum að spila um 70 leiki á tímabili auk landsleikja. Leikjum var ekki frestað til þess að við fengjum hæfilega hvíld fyrir leiki né var frí í deildinni fyrir landsleiki. Það voru einnig fleiri lið í deildinni svo að miðað við álag var ótrúlegt að við skyldum ná árangri á öllum vígstöðvum. Þetta var frábær tími, eftir sjö erfið ár hjá Northampton þá var frábært að vera hluti að sigursælasta liði í Englandi. Ég naut hverrar einustu mínútu, m.a.s. æfingarnar voru skemmtilegar."
Þess má geta að Neal lék alls 417 leiki í röð fyrir Liverpool og geri aðrir betur! Hann er eini leikmaður Liverpool sem tók þátt í öllum úrslitaleikjum Liverpool í Evrópukeppni meistaraliða og fór fjórum sinnum með sigur af hólmi.
Til baka