Aðalfundur 2002
Aðalfundur Liverpool klúbbsins á Íslandi var haldinn í Ölveri laugardaginn 18. mai kl:14:00 og voru þar mættir 32 meðlimir klúbbsins.
Fundarstjóri var kosinn Ásgeir G. Jóhannesson.
Fundarritari var kosinn Jósep S. Jóhannesson.
Fundarsköp: Venjuleg aðalfundarstörf
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar lagðir fram.
3. Umræða um reikninga og skýrslu stjórnar.
4. Kosning formanns til 2 ára.
5. Kosning 2 manna í aðalstjórn til 2 ára.
6. Kosning 2 varamanna í stjórn til 1 árs.
7. Önnur mál.
Skýrsla stjórnar:
Arngrímur fór yfir liðið tímabil svo sem; ferðir, www.liverpool.is og sparnað sem hlaust af breyttu innheimtuformi. Hann talaði einnig um vel heppnaða árshátíð og komu Pete Sampara til landsins. Hann þakkaði að lokum öllum fyrir vel unninn störf á tímabilinu.
Reikningar lagðir fram:
Evert lagði fram reikninga félagsins fyrir aðalfundinn og voru þeir ekki samþykktir, þar sem endurskoðandi hafði ekki vottað það að hafa endurskoðað þá. Aðalfundur samþykkti að reikningunum yrði vísað aftur til endurskoðanda til vottunar og ef það fengist, þá væru þeir samþykktir.
Kosning formanns til 2 ára:
Í framboði voru Arngrímur Baldursson og Sigursteinn Brynjólfsson. Báðir aðilar töluðu máli sínu og fór kosning þannig að Arngrímur fékk 5 atkvæði en Sigursteinn 25 og var 1 seðill auður og einn ógildur. Sigursteinn er því réttkjörinn formaður til næstu 2 ára.
Kosning 2 manna í aðalstjórn :
Í framboði voru Markús Einarsson, Kristmann Þ. Pálmason og Jón Óli Ólafsson. Allir gerðu grein fyrir framboði sínu og fór kosning þannig að Kristmann fékk 22 atkvæði, Markús 21 , Jón Óli 17 og ógildir voru 2. Kristmann og Markús eru því réttkjörnir í aðalstjórn til næstu 2 ára.
Kosning varamanna til 1 árs:
Í framboði voru Bergvin Gíslason, Jón Óli Ólafsson, Kristján Guðmundsson, Ottó Einarsson og Ingi Björn Ágústsson. Allir gerðu grein fyrir framboði sínu og fór kosning þannig að Jón Óli fékk 20 atkvæði, Kristján 13, Bergvin 13, Ingi 9 og Ottó 5.
Þar sem Bergvin og Kristján voru jafnir þurfti að kjósa á milli þeirra. Í þeirri kosningu fékk Kristján 16 atkvæði, Bergvin 15 og einn seðill var auður. Jón Óli og Kristján eru því réttkjörnir varamenn til 1 árs.
Kosning endurskoðanda:
Hilmar Daníelsson var sjálfkjörinn þar sem hann var einn í framboði.
Önnur mál:
Ávarp frá fráfarandi formanni Arngrími þar sem hann þakkaði fyrir sig og fór nokkrum orðum um þann tíma sem hann hefur verið í stjórn Liverpool klúbbsins á Íslandi eða frá stofnun hans. Óskaði hann nýrri stjórn velfarnaðar.
Fundarmenn hvöttu Arngrím til að vinna áfram fyrir klúbbinn en Arngrímur taldi það ekki líklegt eins og staðan væri, allavega ekki í þeim mæli sem hingað til hefur verið.
Fundi slitið.
Fundarritari
Jósep S. Jóhannesson

