Skilmálar vegna miðasölu

Vinsamlegast farið vel yfir miðakaupin þegar þau eiga sér stað, er þetta rétt dagsetning, rétt svæði, rétt tímasetning o.s.frv.

Ekki er heimilt að áframselja miða með fjárhagslegum hagnaði. Ef miði er seldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir annan aðila en aðstandenda viðburðar, þá áskilur Liverpool klúbburinn sér rétt til að ógilda miðann með öllu.

Ef viðburður fellur niður, þá er eigendum miða full endurgreiðsla á miða.

Þegar þú hefur keypt miða á viðburð Liverpool klúbbsins í gegnum vefinn hefur þú 14 daga frá miðakaupum til þess að falla frá kaupunum og óska eftir endurgreiðslu á miðanum hjá Liverpool klúbbnum, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga. Ef viðburður sá sem keyptur er miði á er haldinn innan 14 daga frá miðakaupum átt þú hins vegar í engum tilvikum rétt á endurgreiðslu, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema í þeim tilvikum er viðburður fellur niður.

Allir miðar eru afhentir rafrænt í gegnum tölvupóst.

Aldurstakmark á viðburði ræðst eftir útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga. eftir kl. 20.00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með forsjáraðila.

Týndur miði er tapað fé, athugið að aðeins í örfáum tilvikum er hægt að endurútgefa miða sem hafa týnst einhverra hluta vegna.

Takmarkaður miðafjöldi. Á suma viðburði er miðafjöldi takmarkaður við miðakaup, ef fleiri miðar eru keyptir á saman nafn, kennitölu, netfang eða kreditkort, þá áskilur Liverpool klúbburinn sér rétt til þess að ógilda alla miða sem keyptir eru umfram þann fjölda sem tiltekin er.

Með kaupum á miða hjá Liverpool klúbbnum, samþykkir þú að fá sendan tölvupóst af og til frá þeim aðila er stóð að viðburðinum. Ef þú af einhverjum ástæðum vilt ekki samþykkja þetta, þá getur þú haft samband við Liverpool klúbbinn.

Allir viðburðir eru á ábyrgð Liverpool klúbbsins.

Liverpool klúbbinn og aðstandendur viðburða bera enga ábyrgð á persónulegum munum miðaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.

Liverpool klúbburinn geymir engar upplýsingar um miðakaup viðskiptavina sinna.

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Liverpool klúbbsins á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.
TIL BAKA