Aðalfundur 2007
Fundargerð aðalfundar Liverpoolklúbbsins á Íslandi 2007, haldinn á Players fimmtudaginn 17. maí kl. 20.
JÓJ setur aðalfundinn.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
JÓJ stingur upp á Guðmundi Magnússyni sem fundarstjóra og Hallgrími Indriðasyni sem fundarritara. Samþykkt einróma
Guðmundur þakkar traustið og úrskurðar að fundurinn sé löglegur. - Skýrsla stjórnar, flutt af Jóni Óla
Ný stjórn var kosin í fyrra og var Jón Óli kosinn formaður. Sigurður Reynisson var kosinn í aðalstjórn og tók við varaformannsembætti. Benedikt Jón Sigmundsson tók sæti í aðalstjórn og tók við skráningum. Sigurður Hjaltested hætti í stjórn og Arngrímur Baldursson tók sæti í aðalstjórn.
Haldið var golfmót Liverpoolklúbbsins í fyrsta sinn í samvinnu við GKG sem tókst vel.
Einn fánadagur var haldinn, á Players þegar KOP varð 100 ára í lok ágúst.
Árshátíðir tókust vel, bæði barna- og fullorðinsárshátíð.
Klúbburinn fór sjö ferðir á Anfield í vetur og hafa þær aldrei verið fleiri.
Rauði herinn kom út fjórum sinnum að vanda.
Reynt var í fyrsta sinn að gefa félögum kost á að greiða árgjaldið í LFC-búðinni.
Jón Óli þakkaði öllum sem lagt hafa hönd á plóginn í starfsemi klúbbsins á þessu ári. - Ársreikningar, bornir fram af Markúsi Einarssyni.
Tekjur klúbbsins voru tæpar 7,8 milljónir, gjöld tæpar 7,6 milljónir. Rekstrarhagnaður starfsársins var 200.793, og alls með fjármagnsliðum 353.831. Þetta er rúm fimm hundruð þúsund krónum minna en í fyrra en það skýrist af útistandandi tekjum frá Leppin sem ekki er gert ráð fyrir að skili sér. Þá eru niðurfærðar tekjur vegna samstarfssamnings við LFC-búðina sem ekki hafa skilað sér en hafa ekki verði afskrifaðar ennþá.
Eignir klúbbsins eru tæpar 3,2 milljónir. Handbært fé er 1,7 milljónir.
Reikningarnir eru samþykktir með öllum atkvæðum. - Kosning þriggja stjórnarmanna til tveggja ára.
Arngrímur Baldursson, Bragi Brynjarsson, Benedikt Jón Sigmundsson og Hallgrímur Indriðason gefa kost á sér. Kjósa þarf þrjá til tveggja ára og einn til eins árs og sá sem fæst atkvæði fær er kosinn til eins árs.
Kosningin fer þannig að Hallgrímur fékk 9 atkvæði, Benedikt 8, Bragi 7 og Arngrímur 3. Hallgrímur, Benedikt og Bragi eru þar með kjörnir til tveggja ára og Arngrímur til eins árs. - Kosning tveggja í varastjórn. Stungið er upp á Guðmundi Magnússyni og Guðmundi Heiðarssyni. Ekki komu aðrar uppástungur og teljast þeir sjálfkjörnir.
- Kosning endurskoðanda. Stungið upp á Birgi Grétari Haraldssyni. Engar aðrar uppástungur koma og telst hann því sjálfkjörinn.
- Ákvörðun um árgjald. Jón Óli leggur til að árgjaldið verið óbreytt, 2.500. Það er samþykkt samhljóða.
- Önnur mál.
a) Jón Óli leggur til að stofnaður verði YNWA styrktarsjóður sem styrkja góð málefni. Ekki þarf lagabreytingu til að stofna slíkan sjóð. Hugmynd hafði komið upp að árgjald yrði hækkað en hækkunin færi í sérstakan sjóð. Hugmynd stjórnarinnar er að klúbburinn leggi peninga á móti félagsmönnum. Stjórnin þurfi hins vegar að útfæra þetta betur. Þetta er vettvangur fyrir félagsmenn til að leggja góðu málefni lið ef þeir vilja. Fundarmenn voru almennt sammála því að fyrir utan það að gott málefni yrði styrkt væri þetta góð kynning fyrir klúbbinn. Stjórninni falið að halda áfram að vinna í þessu máli.
b) BJS segir nauðsynlegt að fararstjórar verði á dagpeningum í hópferðum á vegum klúbbsins. Fundarmenn sammála um að vísa þessu til stjórnar. - Jón Óli þakkar fyrir góðan aðalfund sem er þó sá fámennasti í sögu klúbbsins, þó að aldrei hafi verið fleiri greiddir félagar í klúbbnum. JÓJ þakkar sérstaklega störf Jósep Svans Jóhannessonar sem hættir nú í stjórninni eftir tíu ára setu þar.
Fleira var ekki gert. Fundi var slitið kl. 20:45.
Fundarritari: Hallgrímur Indriðason.

